Berjablámi

September 11th, 20106:15 pm @ kolla

3


Berjablámi

Bláber eru af mörgum talin ein næringaríkasta fæða sem völ er á. Sumir ganga jafnvel svo langt að kalla þau súperfæðu vegna þess hversu  stútfull af vítamínum og andoxunarefnum þau eru.

Þau eru holl hjartanu þar sem þau vinna á slæma kólesterólinu og einnig talin vinna gegn bakteríusýkingum og  bólgum í meltingarvegi.

Ynjur elska berjatímann og það að liggja úti í náttúrunni og tína ber jafnast á við hugleiðslu að okkar mati. Burséð frá allri hollustu eru berin líka svo dásamlega bragðgóð.

Einmitt þess vegna fögnum við hverri einustu uppskrift sem inniheldur uppáhaldsberin okkar, bláber.

Hér eru tvær ofureinfaldar:

Bláberjadrykkur

Ab mjólk

1 dós bio-bú mangójógúrt

1 dl bláber

1 banani

nokkur frosin jarðaber

1 epli

klakar

*Allt sett í blandarann.

Það er hægt að leika sér endalaust með svona drykki, sleppa t.d. mangójógúrt og setja epladjús í staðinn, ananas í staðinn fyrir epli o.s.frv.

Ef þið viljið hafa drykkinn saðsamari er tilvalið að setja smá haframjöl saman við.

Bláberjabaka


Þú þarft:

1/2 l bláber (frosin eða fersk)

100 gr. hrásykur

175 gr.hveiti

100 gr.smjör (ósaltað)

Aðferð:

Hitaðu ofninn í 200 C

Smyrðu eldfast mót

Skerið kalt smjörið í bita og blandið saman við hveiti og sykur.

Blandið saman með fingrunum þangað til deigið er grófkornótt.

Þrýstið hluta af deiginu ofan í eldfasta mótið og upp með hliðunum.

Setjið berin ofan á og stráið afgangnum af deiginu yfir berin.

Bakið við 200 C  í 15 mínútur eða þar til deigið verður gullbrúnt.

Bökuna er gott að bera fram volga með ís eða rjóma.

*Verði ykkur að góðu

Myndir og texti: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir