Anna Lísa Hallsdóttir 6 ára er hress stelpa sem býr í Sólheimum með mömmu sinni Elvu Rósu Skúladóttur, pabba Halli Hallssyni og litlu systur sinni Erlu Kamillu 8 mánaða.
Herbergi Önnu Lísu minnir á sannkallaðan draumaheim. Litríkir og fallegir hlutir fá að njóta sín í bland við dásamleg leikföng og skraut hvaðanæva úr heiminum.
Þegar þú stígur þangað inn breytist þú samstundis í persónu úr ævintýri, blómálf, prinsessu, kött. Þitt er valið því af nægu er að taka.Búningasláin hefur slegið rækilega í gegn hjá Önnu Lísu og vinum hennar enda mun auðveldara að sjá úrvalið þegar þeim er stillt svona fallega upp, fyrir utan það hversu mikið augnakonfekt þeir eru.
Ynjur fengu að líta við í ævintýraheimi Önnu Lísu og gleyma sér um stund.
Uppáhald Önnu Lísu 6 ára:
Leikfang: Kastalinn og allir búningarnir
Bók: Bækurnar um Snúð og Snældu, umferðarbækurnar, Pollýanna og Bróðir minn Ljónshjarta
Litur: Vínrauður
Lag: Honey, honey með Abba
Matur: Pasta, pylsur og pizza
Skemmtilegast að gera: Fara í bíó
Ætlar að verða: Selja popp í bíó
Myndir og texti: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir




















































Anna S. Garðarsdóttir
1 Ár síðan
Þvílíkur ævintýra heimur. Enda er Anna Lísa einn af afkomendum prinsessunnar hennar Mjallhvítar ;D
Kolla
1 Ár síðan
Já það má nú aldeilis ekki gleyma að minnast á að langamma Önnu Lísu er einmitt fyrirmynd sjálfrar Mjallhvítar*