Síðsumur eru í miklu uppáhaldi hjá undirritaðri því hún hefur dálæti á berjum og mikinn áhuga á að koma berjauppskerunni upp í munn og ofan í maga. Bæði rifsber og sólber eru mjög góð í hlaup og mauk og þar sem berin vaxa á víðavangi um borgina alla er þar kjörið tækifæri fyrir flesta að nýta sér uppskeruna. Við fengum nokkrar góðar uppskriftir til að reyna heima og gefum ykkur hér þær sem okkur reyndust bestar og smá fróðleiksmola að auki um rifsberin ykkur til hvatningar.
Litlir rauðir hermenn
Rifsber eru nytsamleg og hafa skarpt súrsætt bragð. Þau hafa verið nýtt í lækningarskyni og þá til hitalækkunar og til þess að bæta blóðflæði og ýta við ónæmiskerfinu. Þau eru einnig hægðalosandi. Rifsber innihalda nokkuð af trefjum, hafa hátt innihald c-vítamíns en í 100 grömmum eru 21 mg af C vítamíni. Í rifsberjum finnst einnig járn (1.2 mg í 100 gr) og járnið nýtist líkamanum vel í samfloti með C-vítamíni. C- vítamín er okkur nauðsynlegt svo að sár geti gróið og það eykur varnir líkamans, þar með talið ónæmiskerfið, gegn ýmsum sýkingum. Stresspúkar athugið þetta sérstaklega því líkaminn þarfnast aukins C- vítamíns þegar hann er undir álagi og því er alveg ónýtt að láta þessi nytsamlegu ber rotna á runnunum. Út að tína núna strax. (En skiljið eitthvað eftir handa blessuðum smáfuglunum.)
Sólber vaxa líka vel í görðum á Íslandi þó þau eigi oft erfiðara uppdráttar. Þau þurfa lengri tíma og meiri lofthita til að dafna en eru eins og rifsberin næringar -og trefjarík með eindæmum. Uppskeran á höfuðborgarsvæðinu virðist þó vera meiriháttar í sumar. Berin eru bragðmeiri og sumum finnast þau jafnvel örlítið beisk. Berin eru oftast notuð til þess að útbúa síróp og þykkni og við höfum heyrt sögur af því hversu dásamleg þau eru til ísgerðar þótt við höfum ekki látið til skarar skríða í þeim efnum.
Brall og sullumall:
Prófið að setja rifsber og klaka í blandara og hrærið saman. Blandan verður þykk og freyðandi og bragðið kemur á óvart. Við settum örlítið af agavesýrópí út í blönduna til að sæta hana og sigtuðum hana til þess að losna við berjahratið.
Við kunnum vel við þessa uppskrift frá Nigellu og súr rifsberin smellpassa í þessa sykurbombu. Marengsinn á að vera þurr og stökkur að utan en seigur að innan. Ef að marengsinn mistekst, reynið aftur. Passið að eggjahvíturnar séu volgar þegar þið þeytið þær og skálin og öll áhöld hrein. Okkur þykir síðan fallegt að sigta örlítið af flórsykri yfir berin í lokin. Það er sérstaklega gott að blanda saman rifsberjum, bláberjum og sólberjum.
Í marengs:
4 eggjahvítur
Sítróna
16 msk. sykur
1 tsk. hvítvínsedik
2 tsk. maísmjöl
nokkrir vanilludropar
Aðferð:
Smyrjið skál að innan með sítrónusafa. Þeytið volgar eggjahvíturnar í skálinni og þar til að þær eru nærri því stífþeyttar. Þeytið svo sykrinum varlega saman við í smáskömmtum og bætið svo út í edikinu og maísmjölinu jafnt og rólega. Að lokum getið þið bætt örlitlu af vanillu út í blönduna með sleif.
Setjið smjörpappír á bökunarplötu og gerið rúmlega 20 cm hring og hellið deginu innan hans. Hafið svolitla hæð í massanum, ekki fletja of mikið út.
Forhitið ofninn í 180 °C en lækkið hitann í 150°C þegar þið setjið marengsinn inn í ofninn. Bakið botninn í 45 mín. Látið hann síðan kólna inn í ofninum svo hann verði ekki of blautur.
Snúið marengsinum á hvolf og smyrjið þeyttum rjóma yfir. Setjið svo ofan á rjómann bláber, rifsber og ef til vill sólber ef þið eigið þau til.
Klassískt rifsberjahlaup
Hefðbundna aðferðin er að gera hlaup úr rifsberjunum og það kunna allar þungvigtarhúsfreyjur og sveinar. Varnaðarorð áður en hafist er handa: Ef hlaup mistekst hafa berin að öllum líkindum verið orðin of þroskuð. Rétti tíminn til að tína er núna!
Aðferð:
Notað er 1 kg af sykri á móti 1 kg af berjum, 1/2 bolli af vatni og við fengum ráð að setja með eina stöng af vanillu sem við höfum ekki gert áður en smakkaðist vel. Berin má sjóða á stönglinum. Þau þurfa að sjóða í um 15 mínútur þangað til þau eru sprungin. Þá er hratið og stönglarnir síuð frá. Við gerðum það með því að nota taubleyju sem við strengdum yfir stóra skál. Hreinn og tær rauður vökvinn er síðan settur aftur í pottinn með sykrinum og vanillunni og soðið upp í 20 mínútur. Engan sultuhleypi á að þurfa nema berin séu orðin of þroskuð. Þá er bara að hlaupa út í búð og kaupa sultuhleypi. Hellið síðan sultunni heitri í dauðhreinsaðar krukkur og upp í topp. Látið kólna við stofuhita áður en þið rennið krukkunum eins og fagmenn inn í ísskáp.
1-1½ kg ber, fersk blanda af nýtíndum berjum
½ l hvítvín, sætt
½ l superberry safi-simply berry
sykur fyrir þá sem vilja
12 matarlímsblöð
Aðferð:
1. Nota má hvaða ber sem er. Til að mynda rifsber, bláber, hindber, brómber og sólber. Matarlímsblöðin eru að fyrstu lögð í bleyti í kalt vatn (5 mínútur) og síðan brædd í vatnsbaði. Víni og safa blandað saman og síðan er volgu matarlíminu hrært saman við. Við notuðum berjasafa frá Superberry sem fæst í flestum stórverslunum en mörgum finnst betra að nota eplasafa með hvítvíninu. Það má vel sleppa hvítvíninu, nota annað vín eða notast eingöngu við safa.
2. Setjið berjablönduna í góð glös. Okkur finnst best að nota glös með tiltölulega flötum botni. Hellið blöndunni yfir.
3. Leyfið blöndunni að stífna að minnsta kosti 4 klukkustundir. Takið hana út um 10 mínútum áður en bera á fram.
4. Berið hlaupið fram með þeyttum rjóma með vanillu eða bara eitt og sér.






August 20th, 2010 → 12:10 pm @ kristjana
0