Topp 10 leiðir til að spara orku (fyrir nískupúka)

August 31st, 20109:23 am @ kristjana

2


Topp 10 leiðir til að spara orku (fyrir nískupúka)

 

 1. Þróaðu með þér nætursjón:

Ef þú getur farið lipurlega um í myrkri verður lífið á fróni öllu léttara og orkureikningarnir lægri.

2. Borðaðu nóg af súkkulaði:

Og hafðu orkubúskapinn í hámarki. Þannig safnarðu á þig hlýju lagi af spiki eins og selur í köldum sjó og þolir vel að lækka hjá þér hitann meðan  þú hefur það að auki gott.

3. Ekki vera heima hjá þér:

Að vera heimavið er of dýrkeyptur lúxus og hvers vegna að vera heima þegar það er yfirdrifið nóg af vatni og birtu streymandi frá glóperum á opinberum stöðum eins og söfnum og bókasöfnum.

4. Farðu á bílaþvottastöð:

Og þvoðu þér. Það er heitt vatn á þvottastöðinni við Hagatorg. Þvílíkur lúxus.

5. Borðaðu úti:

Loksins er komin góð ástæða til þess að leyfa sér að borða úti í meira mæli. Það er alltof dýrt og orkufrekt að elda heima svo það er best að skella sér út og fá sér smá Tapas eða sushi.

6. Borðaðu hjá vinum

Best er þó auðvitað að heimsækja gestrisna og þolgóða vini um sexleytið og sýna ekki á sér fararsnið. Hver veit nema þér verði boðið að sitja við horn eldhúsborðsins.

 7. Aðrir orkugjafar

Er ekki ráð að finna aðra orkugjafa þar sem okkar náttúrulegu auðlindir eru að verða jafn dýrar og þar sem þær skortir? Við mælum með því að öll iðja heimilismanna sé virkjuð með heimatilbúnum búnaði:  klósettferðin, kynlífið og heimaleikfimin.

 8. Fáðu þér belju:

Besti orkugjafinn hljóta þó að vera að koma sér upp nokkrum beljum í stofunni. Þær eru gefa frá sér mikinn varma eru fallegar og vinalegar og þú getur drukkið beint af spenanum. Það verða allir komnir með belju 2011.

 9. Tísku-ullarhamur:

Loksins hefurðu afsökun til að kaupa þér ultra mega tísku ullarselshaminn sem þig hefur alltaf langað svo í en ekki fundið þér leið til að raða ofar á forgangslistann.  

 10. Þvoðu þvottinn hjá mömmu:

Óskammfeilið en gott og gilt. Móðurfaðmurinn stækkar í kreppunni.

Mynd: Selshamur eftir Vík Prjónsdóttur.