1. Hlauptu
Hlauparar eru gæðablóð, að minnsta kosti á Íslandi. Í ágústmánuði er orðin hefð að hlaupa til styrktar góðum málefnum. Láttu ekki þitt eftir liggja og reimaðu á þig skóna. Dagsetningin er 21.ágúst. Skráðu þig á marathon.is.
2.Menningarnótt
Reykjavík breytist í stórborg nokkrum sinnum á ári. Á menningarnótt er ótalmargt í boði. Við ætlum að kíkja í tjald kvennafrídagsins og svo verðum við að forvitnast um karluglur í ævintýraleik. En Frímúrarareglan opnar húsakynni sín milli 14 og 16. Þar sem til sýnis verða fundarsalir og hátíðarsalur, minjasafn, bókasafn, fundarherbergi Æðstaráðs og skrifstofa stórmeistara.
3. Kattavinir
Þetta skilti er til fyrirmyndar en óþekktur prakkari í Vesturbænum á heiðurinn af því. “Reykjavík er borg kattanna,” það skrifaði hinn heimsfrægi rithöfundur Murakami um Reykjavíkurborg eftir að hafa þrætt göturnar og tekið eftir gæfum köttum á hverju horni.
4. Salbjörg
Við bjóðum tákngerving náungakærleika, hana Salbjörgu borgarstýru velkomna og viljum gjarnan að hún sé oftar sýnileg á tyllidögum. Við trúum því að hún bjargi mannslífum og hneigjum okkur djúpt fyrir þessarri ómótstæðilega krúttlegu og valdamiklu konu.
5. Berjatínsla
7 ára gamall vinur Ynjunnar komst á bragðið þegar honum var tjáð hversu ógurlegt verðmæti er falið í bláberjunum. Eitt lítið box af bláberjum er selt á meira en fimmhundruð krónur í verslunum. “Ég held ég sé búinn að týna fyrir 8000 krónur”, hrópaði hann mótiveraður með nefið ofan í góðri þúfu. Gerið berjatínurnar klárar og byrgið ykkur upp.
6. Skólavörublæti
Lykt af leðurpennaveski og pappír, skólatöskur, ullarpeysur og treflar og síðast en ekki síst eftirvænting um umbreytingu og ævintýr. Ef þú ert atvinnulaus, vonlaus eða á villigötum; Skráðu þig í skóla eða á námskeið og verslaðu þér fallegt skóladót.
7. Prjónaæði
Ekki enn búin að taka upp prjónana? Ef þú ert flækt í garnhnyklinum þá er þér ekki vorkunn. Þú getur sótt námskeið hjá Tækniskólanum og lært að prjóna þína fyrstu peysu eða keypt þér frábæra bók Ragnheiðar Eiríksdóttur, Prjónum saman þar sem vonlausum nýgræðlingum er kennt að prjóna.
8. Grænmetissúpur
Gulrótarsúpur með engifer eða hnausþykkar grænmetissúpur með rófum, kartöflum og grjónum. Við elskum haustmatseld og erum löngu komin með leið á grillmat og léttum réttum.
9. Bækur og ljóð
Á sumrin er bókunum víst mokað út úr verslunum í lestrarhesta sem vilja reka nefið í eitthvað léttmeti í fríinu. Á haustin þykir okkur viðeigandi að þyngja róðurinn aðeins og velja lesefni sem reynir á og er uppbyggjandi fyrir sálina. Lesið ljóð og klassískar bókmenntir. Við mælum með ljóðum Hannesar Péturssonar og litlu bókinni hennar Elísabetar Jökulsdóttur, Bænahús Ellu Stínu.
10. Frístundir
Haustin eru frábær tími til að opna nýjar dyr með því að bregða út af vananum. Við erum þrælar vanans og því er upplagt að taka djarfar ákvarðanir á haustin. Skráðu þig í gítarnám, lærðu að tefla, tala japönsku, keyptu þér góða myndavél eða hvaðeina. Bara að það sé ekki það sama og þú gerir venjulega.



August 11th, 2010 → 10:39 am @ kristjana
0