1. Hver er konan?
Ég er Kristín Dagmar og er sjálfstætt starfandi sýningarstjóri. En ég hef sinnt ólíkum verkefnum að undanförnu, til að mynda stýrði ég Sjónlistarhátíðinni Sequences á síðasta ári ásamt Klöru Þórhallsdóttur. Einnig vann ég að sýningu í samvinnu við Magnús Árnason myndlistarmann í Náttúrufræðistofu Kópavogs en hún stendur enn yfir og ýmist annað sem ég hef verið að stússa í.
2. Hver er bakgrunnur þinn?
Ég er listfræðingur að mennt og nokkuð nýskriðin úr skóla. Ég lauk BA námi úr listfræði við Háskóla Íslands vorið 2007. Þaðan fór ég beint í framhaldsnám í Skotlandi og lauk MA gráðu í samtímalistfræði og sýningarstjórnun frá Edinburgh College of Art síðasta vor.
3. Hvað er á döfinni?
Ég er að sýningastýra samsýningu í Hafnarborg- menningar og listamiðstöð Hafnafjarðar sem opnar föstudaginn 27. ágúst. Sýningin ber titilinn Að elta fólk og drekka mjólk og sýnir verk 19 íslenskra listamanna af ólíkum kynslóðum en í verkum þeirra er að finna ýmis tilbrigði húmors. Þetta eru þó ekki bara brandarakallar í íslenskri myndlist heldur felst húmorinn í framsetningu eða tungutaki verkanna sem snýr svolítið upp á hið venjubundna. Líkt og titilinn ber vitnis um. Viðfangsefnið stendur okkur vissulega nærri eftir sigur Besta flokksins í borgarstjórnarkosningunum fyrr á árinu og satírunni í kosningabaráttu þeirra og því tilvalið að kafa svolítið dýpra ofan í þetta fyrirbæri sem við köllum húmor. Í samvinnu við Þjóðfræðistofu verður líka efnt til málþings í tengslum við sýninguna laugardaginn 25.september. Þar er hugmyndin að kanna húmor í víðara samhengi, sem samfélgasrýni og valdatæki.
4. Hvaðan kemur nafnið: Að elta fólk og drekka mjólk?
Yfirskrift sýningarinnar kemur úr einu verkanna á sýningunni en það er verk Sigurðar Guðmundssonar myndlistarmanns og heitir Ljóð (Að elta fólk og drekka mjólk) frá árinu 1972. Mig langaði að finna titil sem væri svolítið skemmtilegur en um leið svolítið absúrd en svo er hann líka mjög ljóðrænn. Verkið er sviðsett ljósmynd en þar er að finna leik að orðum í titlinum og bókstaflega framkvæmd á því sem hann lýsir. Verkið er frá upphafi þess tímabils í ferli listamannsins þegar hann setti ítrekað upp slíkar sviðsetningar í ljósmyndaverkum sínum Situations.
5. Hefur þú góða kímnigáfu?
Mér hefur alltaf þótt ég með einstaklega góðan húmor. En ég get að sjálfstögðu ekki verið viss um að allir séu sammála því. En það er einmitt þannig með húmor að hann er svo einstaklingsbundinn og breytilegur. Svo er maður svo misjafnlega stemmdur, stundum tekur maður upp á því að vera voðalega alvarlegur og ekki stekkur bros á vör yfir því sem maður skellihló að í gær. Stundum getur aulalegur húmor verið alveg frábær og stundum hefur maður meira bragðskyn á intelligent húmor. En það fer allt eigin viðhorfi.
6. Hvað skiptir þig mestu máli í lífinu?
Ætli það sé ekki að upplifa sig eiga innihaldsríkt líf sem skipti mann mestu máli. Svo það er bara að pakka því góðu innihaldi
7. Áttu þér einhverjar fyrirmyndir?
Já alveg milljón. Svona sitt lítið frá hverjum því enginn er fullkominn.



August 26th, 2010 → 9:08 am @ kristjana
0