Handlitun 101

August 19th, 20101:58 pm @ kolla

4


Handlitun 101

Það þarf ekki að vera flókið að hressa upp á fataskápinn með litlum tilkostnaði.

Á fatamörkuðum sem eru auglýstir um allan bæ má finna sér notaðar og nýjar flíkur á spottprís og ef liturinn hentar ekki þá er afbragðsráð að lita flíkina og setja þar með persónulegan svip á hana í leiðinni.

Ég  hef lumað á fatalitum úr Þorsteini Bergmann í þónokkurn tíma en alltaf miklað litunarferlið fyrir mér. Þegar ég loks lét verða af því að prófa litina komst ég að því að handlitun er einstaklega auðveld og svo skemmtileg tilraun að mig langaði helst að finna miklu fleiri flíkur til að regnbogalita.

Þú þarft:

Flík að eigin vali (hér er notast við 3 stk. 500 kr. boli af fatamarkaði og fölgulan náttkjól).

Einnota gúmmíhanska.

Fatatalit í dós (fæst í Þorsteini Bergmann á Skólavörðustíg)

30 gr. salt

1/2 lítra af soðnu vatni

Aðferð:

  • Skolið flíkina og vindið vel.
  • Sjóðið 1/2 lítra af vatni.
  • Hellið sjóðandi vatninu í gamlan pott eða ílát sem þolir hita en er ekki notað í matargerð (liturinn á það til að loða við ílátin).
  • Stingið gat á fatadósina og blandið duftinu út í sjóðandi vatnið.
  • Setjið saltið út í litablönduna.
  • Farið í gúmmíhanska.
  • Leggið raka flíkina út í litað vatnið og hitið að suðu.
  • Hrærið vel í og gætið þess að velta flíkinni til og frá til þess að fá jafna litun.
  • Látið liggja í 20 mínútur og hrærið.
  • Flíkin er skoluð  þar til vatnið verður tært.

Gott að hafa í huga:

Flíkin sem á að lita þarf að vera hrein og án bletta.

Blettir verða dekkri við litun.

Gerviefni verða ljósari og taka jafnvel ekki lit (sjá mynd af mussunni sem var úr bómull og gerviefni í bland).

Dósin miðast við 250 gr. af bómullarefni.

Hægt er að nota fleiri en eina dós í einu ef þið eruð með meira magn eða viljið dekkri lit.

30 gr. af salti á móti einni dós.

Litaðar flíkur skal þvo sér fyrst um sinn til að koma í veg fyrir að liturinn smiti í aðrar flíkur.

Muna litafræðina: ef þú litar gula flík með bláum lit þá verður hún græn, blá flík með rauðum fatalit verður fjólublá o.s.frv.

Góða skemmtun*

Myndir og texti: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir