Þessi uppskrift er í miklu uppáhaldi vegna þess hversu einföld, bragðgóð og fljótleg hún er í alla staði.
Tilvalið er að nota þessa grunnuppskrift og skipta um bragðefni. Setja til dæmis uppáhaldssúkkulaðið í staðinn fyrir bláber, skipta út berjategund og svo framvegis.
Kökurnar:
Uppskrift að u.þ.b. 16 kökum.
150 g. smjör (ósaltað)
2 dl. hrásykur
2 egg
3 dl. hveiti
1 tsk. lyftiduft
1/2 dl. hrein jógúrt eða AB mjólk
3 og 1/2 dl. bláber, fersk eða frosin
Ath. Ef berin eru frosin þarf að nota minna af jógúrt eða aðeins meira hveiti til þess að kökurnar verði ekki of blautar í sér.
Krem:
6 msk. rjómaostur
3 msk. 10 prósent sýrður rjómi
flórsykur eftir smekk (gott að setja lítið í einu og smakka sig áfram)
smá vanillusykur
hrærið allt vel saman.
Aðferð:
Smjör og sykur hrært létt og ljóst.
Eitt egg sett í einu og hrært á milli.
Hveiti, lyftidufti , jógúrt og berjum blandað saman við.
Deigið er sett í form og bakað við 200 c í um það bil 15 mínútur.
Kökurnar látnar kólna aðeins áður en kreminu er smurt á og ef til vill skreytt með berjum.
Verði ykkur að góðu*
Texti og myndir : Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir




Kolla
1 Ár síðan
hver tekur þessu fínu myndir fyrir vefinn þinn?
kolla
1 Ár síðan
Sæl nafna*
Ég tek flestar myndirnar sjálf.
kv. Kolla
Kolla
1 Ár síðan
frábærlega flottar, elska litina í þeim. Má ég spyrja hverskonar myndavél þú notar?
kolla
1 Ár síðan
Takk kærlega.
Ég nota Canon EOS 1000D og fikta stundum aðeins í þeim eftir á.
Það er annars pínu eins og ég sé klikk og sé að búa til samtal við sjálfa mig hérna;)
Kv.Kolla
Kolbrún
1 Ár síðan
nema ég er Kolla með STÓRU K-i;) Bið að heilsa Distu, snillingar í vinnu hjá henni;)
kolla
1 Ár síðan
Haha já þar liggur munurinn;)
kristjana
1 Ár síðan
Hæ! Kolla með stóru K-i og takk! Kolfinna kollulingur er mikill snillingur! Hún tekur allar myndir nema þær sem við fáum í myndabönkum til skrauts.