Ynja vikunnar er Magdalena Carmen Frida Kahlo y Calderón!
Þessi mexíkóska listakona var fædd í júlí og er okkur ofarlega í huga meðan sólin skín og allir litir eru skærir. Hún þróaði sérstakan stíl þar sem hún blandaði saman táknum, raunsæi og súrrealisma. Meðal þekktustu verka hennar eru sjálfsmyndir málaðar á ýmsum tímum í lífi hennar, margar þeirra tjá sársauka hennar, drauma og martraðir.
Frida glímdi við sársauka alla sína ævi. Sem barn veiktist hún alvarlega af lömunarveiki og þegar hún var 18 ára lenti hún í alvarlegu slysi sem braut í henni hrygginn og eyðilagði móðurlífið. Hún gat því ekki eignast börn og leið miklar kvalir allt sitt líf. Gekkst hún undir þrjátíu skurðaðgerðir, þá síðustu tíu dögum fyrir lát sitt en þá var hægri fóturinn tekinn af henni.
Áður en Frida lenti í slysinu lagði hún stund á læknisfræði. 15 ára gömul var hún innrituð í 2000 manna skóla. Hún var ein 35 stúlkna sem þar stunduðu nám.
Frida giftist ung listmálaranum Diego Rivera. Hann var stóra ástin í lífi hennar og líf hennar með honum var erfitt. Hann var virtur listamaður, ófríður (hann var uppnefndur: froskmaðurinn!), agalega feitur, hryllilega drykkfelldur, kvensamur og svikull.
Þetta vissuð þið ef til vill ekki?
Hún giftist Diego Rivera tvisvar sinnum.
Maður hennar svaf hjá systur hennar Cristinu (og ógrynni annarra kvenna óþokkinn sá!)
Madonna keypti verk eftir Fridu á níunda áratugnum á 2 milljónir punda.
Madonna og J-Lo slógust heiftarlega um að leika hana í kvikmyndinni Frida! (Takk almætti að við þurftum ekki að horfa á hvoruga þeirra heldur þokkagyðjuna Sölmu Hayek).
Frida Kahlo kynntist Leo Trotskíj er hann flýði til Mexíkó og átti í stuttu ástarsambandi við hann.
Kahlo var af mexíkósku, þýsku og gyðinglegu bergi brotin.
Hún var eitt sinn handtekin, grunuð um morð.
Hún klæddist oft karlmannsfötum.
Pablo Picasso var einn aðdáenda hennar og gaf henni eyrnalokka sem hún ber á einni sjálfsmynda sinna.
Hún tók þátt í hnefaleikum þegar hún var ung stúlka og hafði gaman af.
Hún var rekin úr grunnskóla fyrir óspektir.
En fór í framhaldsskóla fyrir framúrskarandi nemendur, ein örfárra stúlkna.
Hún hélt bara einu sinni málverkasýningu í Mexíkó og kom á opnunina í sjúkrabíl og var keyrt um sýninguna í sjúkrarúminu.
Frida Kahlo sagði:
“Fætur, til hvers þarf ég ykkur þegar ég hef vængi og get flogið?”
“Ég set ekki drauma mína eða martraðir á strigann. Ég mála raunveruleika minn.”
“Ég lenti í tveimur ferlegum slysum á minni ævi. Í árekstri og í Diego. Af þessum tveimur var Dieogo öllu verri.”
“Ég drakk til að drekkja sársaukanum en helvítis sársaukinn lærði að synda.”
Aðrir sögðu um Fridu:
“List Fridu Kahlo er silkiborði utan um sprengju!” Andre Breton
“Ef einhverjum líkar ekki við Fridu þá er sá hinn sami ekki vinur minn.” Madonna
Myndasafn:
- Brotinn hryggur
- Frida klæddist skrautlegum klæðnaði til að létta líðan sína
- Frida-Diego- sjálfsmynd
- Frida árið 1932
- Rauður kjóll
- Dádýr
- Skissa eftir Fridu frá 1937
- Þyrnihálsfesti
- Frida og dýrið Diego á brúðkaupsdaginn 1929
- Sjálfsmynd- Frida er með eyrnalokka sem Pablo Picasso gaf henni
















July 20th, 2010 → 12:04 pm @ kristjana
0