Ásgerður Ottesen hefur frá unga aldri haft áhuga á flestu sem viðkemur tísku. Síðastliðin 2 ár hefur hún haldið úti einni vinsælustu tískubloggsíðu landsins Trendland, þar sem hún skrifar um helsta áhugamál sitt í bland við ýmislegt sem hreyfir við henni hverju sinni.
Ása er mikill fagurkeri, hvort sem kemur að fallegum fötum eða hlutunum sem hún velur í kringum sig dagsdaglega. Á heimili hennar leynast því óendanlega margir áhugaverðir hlutir sem gleðja augað.
Ynjur höfðu samband og fengu að forvitnast um allskonar uppáhald í lífi Ásu.
Uppáhalds:
Lykt: Af nýlögðu kaffi á morgnana.
Bragð: Súkkulaðikakan hennar mömmu með ískaldri mjólk.
Efni: 100% natural bómull. Ég er sjúk í góð og dýr bómullarefni.
Mynstur: Doppótt hefur alltaf heillað mig. Vandræðalega mikið af doppum í mínum fataskáp.
Litur: Grænn er minn litur, hann kallar fram það græna í augunum mínum.
Flík: Blár palíettujakki. Jakkinn er ein af uppáhaldsflíkunum mínum eins og er. Hann er svo fallega blár og fer einstaklega vel við sólbrúna húð. Svo glitrar hann líka svo fallega í sólinni. Ég keypti hann fyrir 3 árum þegar ég var að vinna í Gyllta Kettinum.
Skór: Það er nú yfirleitt það nýjasta í skápnum hverju sinni. Akkurat núna eru það skór frá Vagabond.
Ilmvatn: Er að leita að því, fæ hausverk af flestöllum ilmvötnum
.Bók: Skuggi Vindsins fékk mig til að hlæja, vera spennta og gráta. Besta bók sem ég hef lesið.
Land: Svíþjóð því ég er að gæla við skiptinám í Stokkhólmi næstu misseri.
Borg: Reykjavík er best í heimi
Staður á Íslandi: Dimmuborgir við Mývatn er náttúruperla sem ég væri til í að heimsækja einu sinni á ári.
Tónlist: Mér líður alltaf vel þegar ég hlusta á bossa nova tónlist og gleðijazz. Astrud Gilberto til dæmis.
Lag: Never give you up með the black keys
Árstíð: Haustin eru minn tími. Verð alltaf svo hamingjusöm þegar það fer að dimma. Myrkrið er svo dularfullt og kósý.
Kvikmynd: Þessi er erfið, ég á enga uppáhalds þannig séð, en mér finnst japanska teiknimyndin Spirited Away rosalega flott og sjónræn. Söguþráðurinn er fallegur líka.
Hluturinn á heimilinu: Uglan fína úr kisunni er uppáhalds. Ég fékk han
a í 30 ára afmælisgjöf frá yndislegum vinkonum.
Matur: Lambalæri með brúnuðum kartöflum, rauðkáli, gulum baunum og brúnni sósu er unaðslegt.
Orð: Ljúflíngshóll, gæti hugsað mér að koma þangað. Held að þar gerist ævintýralegir hlutir.
Tími dags: Seint á kvöldin þegar flestir sofa fer ég í ham og plana framtíðina. Það á svo margt spennandi eftir að gerast.
Dýr: Api, ég er mikill api sjálf.
Búð: Fríða Frænka, þar er svo margt fallegt sem gleður augað. Verst hvað það er dýrt.
Kaffihús: Súfistinn í Máli og Menningu er bestur. Ég elska að lesa nýjustu tískublöðin og háma í mig köku, en þær eru syndsamlega góðar.
Minning: Þegar bróðir minn kyssti mig bless og sagði love you áður en ég fór í skólann.
- Fatasláin
- Uppáhalds hluturinn á heimilinu
- Ilmandi kaffi
- Tímarit
- Doppóttur
- Vinyl leikföng
- Glersvanir
- Teboð
- Uglukerti
- Ása í stiganum
- Spariveski
- Súkkulaðikaka
- Uppáhalds búðin
- Skópör
- Gjöf
- Útsaumaður af ömmu
- Glugginn í Fríðu frænku
- Nói
- Uppáhalds skórnir
- Krummahreiður
- Tesett
- Úrval
- Skart
- Nýjustu skórnir
- Hægindastólinn
- Hreindýr
- Glitrandi
- Í uppáhaldi
- Harmonikka
- Náttborðið
- Biblíumyndir
- Á náttborðinu
- Litagleði
- Gauksklukka
- Jesús og félagar
- Rósasápa
- Hárskraut
- Baðmyndir
- Gamall eldspýtustokkur
- Dádýr
- Blómapottur
- Heiðurssæti
- Lundi
- Blaðakarfan
- Amma og afi
- Postulín
- Uppskriftir
- Ástarbolli
- Babúskur
- Eldhússkraut
- María mey
- Ása Ottesen
Myndir og texti: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir
























































July 26th, 2010 → 12:25 pm @ kolla
0