Tinna Bessadóttir býr í Danmörku sendir okkur reglulega heilræði yfir hafið. Að þessu sinni deilir hún með okkur uppskrift að írsku sódabrauði fyrir okkur sem hafa lítinn tíma til að koma okkur í klístruð vandræði í eldhúsinu...
Það er svo oft sem að manni langar í nýbakað brauð eða köku en hefur hvorki tíma til að baka né hráefnin sem til þarf.
Þetta sódabrauð er gerlaust og innihaldið til á flestum heimilum. Það er td. ágætt að nýta súrmjólkina sem er að renna út í stað þess að fleygja henni í ruslið.
Það tekur ekki nema 5 mínútur að henda saman hráefnunum í skál og tilvalið að gera það á morgnana þegar að maður er ný vaknaður og láta það svo bakast á meðan maður hoppar í sturtuna. Mæta svo ferskur með það með sér nýbakað og volgt í morgun kaffið í vinnunna og láta lýta út fyrir að maður hafið vaknað extra snemma þennan morguninn.
3 bollar hveiti
2 msk. púðursykur
2 tsk. lyftiduft
2 tsk. matarsódi
1 tsk. salt
½ bolli. rúsínur
1 tsk. kúmen
1 ½ bolli. (eða meira) súrmjólk / jógúrt má blanda saman fl. en einni tegund.
Allt sett í skál, hrært saman , sett í 2 sandkökuform og bakað við 180° í 40 mín.
Borðist með miklu smjöri.




July 30th, 2010 → 2:13 pm @ kristjana
0