Regnbogahúsgögn

July 5th, 201011:57 am @ kolla

3


Regnbogahúsgögn

Oftast þarf ekki mikið til að fríska upp á “lúin” húsgögn og ef það er eitthvað sem ég stenst ekki þá er það prufumálning  í öllum regnboganslitum.

Þessi barnahúsgögn litu ágætlega út fyrir utan túss og vatnslitaslettur en nú hafa þau fengið hressilegra útlit með málningu og nýjum sessum.

Þú þarft:

  • Prufumálningadósir í litum að eigin vali. Ef þú ert í vafa er oft betra að  kaupa dekkri tóninn á litaspjaldinu og kaupa hvíta málningu með svo þú getir lýst að vild og fundið þannig draumatóninn.
  • Pensil
  • Fínan sandpappír t.d. 400 en grófari ef gamla málningin er þykk eða í mörgum lögum.

Aðferð:

Byrjið á að þrífa alla fitu af húsgögnunum með sápuvatni.

Ef húsgögnin eru máluð fyrir þarf að matta þau með sandpappír og þurrka vel áður en þau eru máluð.

Málið húsgögnin vandlega og athugið að stundum þarf að grunna undir ljósari litina.

Að lokum eru húsgögnin lökkuð með möttu eða glansandi lakki til að auka slitþol húsgagnanna.

Sessur

Þú þarft:

Svamp (þessi fékkst í Rúmfatalagernum fyrir nokkru)

Efni sem gleður augað (þetta tiltekna efni breyttist t.d. úr gömlum víðum kjól í sessu)

Aðferð:

Sníðið svampinn eftir stólnum og klippið til í rétta stærð.

Sníðið efnið ofan á sessuna í rúmlega stærðina á sessunni og efnið undir í tvo búta sem leggjast yfir hvorn annan.

Faldið bútana tvo í saumavél.

Leggið röngu á móti röngu og saumið saman en skiljið eftir faldaða opið aftan á.

Snúið við og saumið bönd aftan á (sjá mynd).