Það er yndislegt að búa til ekta ömmustemningu á góðum sunnudegi með ofnsteiktu lambalæri og tilheyrandi. En einhvern veginn getur stemningin góða breyst í vesen og alltof mikið maus ef taktarnir eru stirðir. Við gefum ykkur góðar leiðbeiningar vottaðar af þrusuömmum til að leiða ykkur létt í gegnum brasið- ömmurnar voru á því að hafa leiðbeiningarnar ekki of gamaldags og sögðu okkur að þær væru fyrir löngu búnar að afskrifa smjör og smjörlíkið og taka upp fínustu ólífuolíu og saltið velja þær líka vel. Gjörið svo vel:
Hefðbundið læri, tilbúið á slaginu 7:
Klukkan tuttugu mínútur í fimm: Ofninn er hitaður í 150 gráður. Sjáið til þess að allar skúffur séu hreinar.
Klukkan korter í fimm: Lærið (ófrosið!) er smurt með ólífuolíu og smátt niðurskornum hvítlauk. Saltað og piprað. Lærið er sett í ofn og steikt við 150 gráður í 2 klst. Þeir sem vilja geta bætt við örlitlu af rósmarín á lærið og undir það.
Klukkan hálf sex: Vatn sett í ofnskúffuna, ca tvö vatnsglös.
Klukkan sex: Kartöflur soðnar
Klukkan hálf sjö: Kartöflur kældar og flysjaðar. Ca 1 dl af sykri settur á pönnu og hann bræddur. Passið að hann brenni ekki með því að hreyfa vel við honum. Þegar sykurinn er bráðnaður er smá smjörklípu bætt út á pönnuna og dl af vatni. Látið blandast vel saman. Kartöflunum er velt upp úr leginum þar til þær eru brúnaðar. Setjið pönnulok yfir kartöflurnar til að halda á þeim hita. Það er ekki mikið atriði að sykurlegnar kartöflur séu heitar, þær mega vel vera orðnar volgar komnar á borðið.
Klukkan tuttugu mínútur í sjö: Takið lærið í ofninum og setjið á fat. Leggið á borð.
Korter í sjö: Gulrætur og brokkolí soðið í potti í 10 mínútur.
Korter í sjö: Hálfur pakki af sveppum skorinn smátt, sveppirnir steiktir í smjöri ásamt hálfum smátt söxuðum lauk. Hellið 250 ml af matreiðslurjóma saman við. Hellið svo vatni úr ofnskúffunni saman við. Þetta er þykkt með Maizena sósujafnara og kryddað til með örlitlu af jurtasalti.
Klukkan sjö: Takið fram rabarbarasultuna og bjóðið til matar!



July 17th, 2010 → 10:48 pm @ kristjana
0