Fatahönnuðurinn Hlín Reykdal hefur á stuttum tíma aflað sér góðs orðstírs fyrir fagra fylgihluti svo sem slaufur og hálsmen.
Síðasta vetur kynnti Hlín nýja fylgihlutalínu fyrir börn. Í henni er að finna litríkar slaufur, mjúk hárbönd og húfur. Við heimsóttum Hlín á vinnustofu hennar í miðbænum þar sem móðir hennar og faðir halda heimili og hafa að auki hvort sína vinnustofuna.
Faðir Hlínar er myndlistamaðurinn Jón Reykdal og móðir hennar er Jóhanna Þórðardóttir myndhöggvari. Systir Hlínar er Hadda Fjóla Reykdal listmálari.
Hver er bakgrunnur þinn?
Ég hef alltaf vitað að ég ætti að fara út í listir eða hönnun en tók hálfgerða skyndiákvörðun einn góðan morgun eftir 3 frábær skólaár í MH. Ég fór á heimasíðuna hjá Iðnskólanum í Reykjavík einn daginn og skráði mig í hönnunarnám sem reyndist vera afar vandað og gott nám. Eftir námið skráði ég mig til náms í fatahönnun. Ég hafði velt fyrir mér að læra myndlist eða myndskreytingu en ég fann einhverja sterka tengingu við fatahönnunina svo ég lét slag standa og sé alls ekki eftir því.
Hvaðan færðu innblástur?
Á meðan undirbúningur undir útskriftarsýningu Listaháskólans stóð sem hæst beið ég fæðingu dóttur minnar. Hún fæddist svo viku eftir sýninguna og fékk nafnið Stella Reykdal Hallgrímsdóttir. Stella hefur verið mér mikill innblástur að hönnun minni. Annars sæki ég innblástur í myndlist, liti og mynstur. Litir hafa mikil áhrif á mig og ég fæ mikið út úr því að stilla litum og mynstrum saman.
Hvert stefnirðu?
Ég stefni að því að gera fatahönnun að ævistarfi. Meðan það er svona mikill samdráttur er þetta erfiðara en annars en það þýðir þó ekkert annað en að sjá tækifærin sem bíða. Aðstæður nú eru kjörið tækifæri fyrir íslenska hönnuði til að sýna að þeir hversu mikilvægir þeir eru hagkerfinu og við ættum að einbeita okkur að því að færa út kvíarnar og kynna hönnun okkar erlendis.
Er mikil samkeppni í þessum geira?
Nei, þvert á móti ríkir mikil samstaða þannig að samkeppnin er á góðum nótum. Samstaða kristallast kannski í Pop-Up markaðnum sem hefur verið haldinn mörgum sinnum í samstarfi hönnuða með góðum árangri og nú er ég komin í ágætt samstarf með öðrum hönnuðum í Kiosk Búðardóttir. Við erum 9 hönnuðir sem reka verslun á Laugavegi 33 þar sem við seljum hönnun okkar. Þetta er svo lítið samfélag, við vitum öll af hverju öðru þannig að það gengur hvort sem er ekki upp að vera með einhver leiðindi. Þú finnur hins vegar fyrir hörkulegri samkeppni þegar komið er í stærri og þróaðri tískusamfélög eins og tískuborgina París!
Hvað er á döfinni?
Nú er ég að koma framleiðslunni á gott skrið og svo ætla ég að reyna að kynna hönnun mína erlendis og standa vel að nýju versluninni okkar Kiosk Búðardóttur sem opnaði í gærdag.
Myndir af vinnustofu Hlínar:
Texti: Kristjana Guðbrandsdóttir
Myndir: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir


























July 23rd, 2010 → 2:41 pm @ kolla
0