Það er fátt eins notalegt og að skipta um takt og leyfa nýjum og gömlum stöðum að heilla sig upp úr skónum.
Í sumarfríinu er oftast meira en nóg um að vera í skipulögðum útilegum og ferðum út á land að upplifa stemmningu annara plássa.
Stundum eigum við samt til að leita langt yfir skammt í leit að ævintýrum og gleymum því sem er rétt við nefið á okkur. Aðeins steinsnar frá Reykjavík er ævintýraeyjan Viðey.
Viðeyjarferjan siglir nokkrar ferðir á dag og Viðeyjarnaust er opið gestum frá 11:30 – 17:00 yfir sumartímann en einnig er grillaðstaða við skálann.
Á eyjunni eru meðal annars leiktæki fyrir börnin, stultur sem ungir og aldnir geta rifjað upp gamla takta, auk þess sem fólk getur gripið sér hjól að kostnaðarlausu og farið í skoðunarferð á eigin vegum.
Viðburðardagatal Viðeyjar er afar fjölbreytt og skemmtilegt og má þar meðal annars nefna frumbyggjadaginn (í dag 10. júlí) þar sem gestum gefst tækifæri að læra að bjarga sér að hætti frumbyggja, kveikja eld, reisa skjól og leysa alls kyns þrautir.
Á morgun (11 júlí) er árlegi flugdrekadagurinn þar sem áhugasamir geta lært að smíða flugdreka upp á gamla mátan og einnig komið með sína eigin. Kl.11:30 hefst flugdrekasmíðin og kl.14:30 verða allir flugdrekar settir á loft. Að þessu sinni verður reynt við Íslandsmet í fjölda flugdreka á lofti í einu og því allir hvattir til að taka þátt.
Þriðjudagsgöngur eru fastur liður og með mismunandi þema í hvert skipti en auk þeirra verður hestadagurinn, barnadagurinn, hinsegin kaffi, kúmentínsla, sjóræningjadagurinn, hundadagurinn og töðugjöld á dagskrá næstu vikurnar.
Allar nánari upplýsingar um viðburði má finna á Viðeyjarvefnum.
Fyrir þá sem sækjast eftir frið og ró án skipulags er tilvalið að taka með sér nesti, upplifa Viðey á eigin forsendum og finnast tíminn standa í stað.
Góða ferð.
Myndir og texti: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir







































July 10th, 2010 → 2:04 pm @ kolla
0