Það er ólíklegt að þið þekkið tékkneska ballettdansarann Milcu Mayerová nema að þið hafið áhuga á súrrealistum fyrri aldar í Tékklandi, nýbylgju, prentsmíði og ballett. En þessa vikuna þá fáum við innblástur frá Milcu. Árið 1926 bjó hún til myndaballett úr stafrófinu og ballettstöðu fyrir hvern staf við tónlist og stjórn Karels Teige og ljóði Nezval um bókstafina. Samstarf Karels, Nezval og Milcu festu þau í fallega bók sem nýverið hefur verið endurútgefin sem safn korta (upplýsingar um bók á: redstonepress.co.uk og redstoneshop.com).
Bókin bar nafnið Abeceda (Alphabet) og mætti kalla ljóða, letur, ljósmynda -og dansbók. Milca byggði hreyfingar sínar á ljóðum Nezval sem aftur byggði ljóð sín á útliti bókstafsins. Búningur Milcu gefur hreyfingum hennar aukakraft og leikur Teige að útliti textans með ljóðlínunum og stöðu Milcu var byltingarkenndur verknaður á þessum tíma.
Lestur bókarinnar-myndasýning: (af Youtube)









July 12th, 2010 → 11:06 am @ kristjana
0