Hlýja frá toppi til táar

July 15th, 201010:25 am @ kristjana

1


Hlýja frá toppi til táar

Ingibjörg Þóra Gestsdóttir  fatahönnuður og Kristín Unnur Þórarinsdóttir flugfreyja,  öðru nafni Inga og Stína,  létu verða af því að koma nokkurra ára gamalli hugmynd á koppinn nú  á vordögum. Hugmynd að fallegri peysu og teppi  til að klæða af sér kulda á ferðalögum. “Við erum miklar kuldaskræfur,” segir Stína  “Og þaðan fengum við innblásturinn. Okkur langaði til að hafa það  hlýtt og  notalegt, t.d á flugi, en geta jafnframt athafnað okkur, og ekki væri verra ef hönnunin væri falleg.”

“Eins og önnur hver íslensk kona hef ég verið að prjóna lopapeysur í gegnum árin og langaði til að hanna flíkina með hliðsjón af hinni sígildu íslensku lopapeysu.  Við Inga tókum áskorun um að taka þátt í hönnunarkeppninni Gullegginu á vegum Innovit. Útkoma okkar Ingu varð þessi teppapeysa  sem veitir hlýju frá toppi til táar. Ullarflík í sígildum stíl sem er hægt að nota á ferðalögum í flugvél, lest eða rútu,í útilegunni, í jóga eða bara í sófanum heima.  Hún er fyrir bæði kynin, framleidd úr vélprjónaðri íslenskri ull og saumuð af okkur sjálfum. Hún er með ermum og hettu og lokast neðst þannig að poki myndast fyrirfæturna. Henni má svo breyta í peysu á einfaldan hátt með því að nota lykkjurnar neðst á pokanum og smeygja þeim upp á tölurnar sem eru á peysunni innanverðri. Tölurnar á peysunni eru úr íslensku völubeini og kindahorni. Við höfum fengið hönnunarvernd á teppapeysuna.”

Engum þægindum fórnað

“ Í hönnunarferlinu lögðum við ríka áherslu á að hettan gæfi fólki andrými og næði til að hvílast við hinar ýmsu aðstæður,” segir Stína  “Ermarnar gera þér til dæmis kleift að matast eða lesa og vinna í tölvunni án þess að fórna hlýjunni. Hettan þjónar einnig þeim tilgangi að mynda poka utan um teppapeysuna. Flíkinni er rúllað saman og stungið inn í hettuna sem rykkist saman með snúru og breytist við það í þægilegan ferðapoka eða kodda.”

Stína og Inga eru með heimasíðu í smíðum sem fer í loftið  mjög fljótlega. Heimasíðan heitir koffort.is og vísar nafnið í ferðalög. Þær koma til með að vera með flíkina í netsölu á síðunni og eru einnig með aðrar vörur á teikniborðinu. Teppapeysan er til í tveimur litum, hvít með brúnu mynstri og hærusvörtmeð gráu mynstri. Hún er til í tveimur stærðum, S/M, sem hentar þeimsemeru allt að 170 cm á hæð og L/XL, sem hentar fyrir þá sem eru frá170-195cm háir. Vídd teppapeysunnar er sú sama í báðum stærðum, 140 cm.
Varan er á kynningarverði út ágúst  á Isk. 19.900,- með Vsk. ”Þau ykkar sem vilja festa kaup á peysunni áður en síðan fer í loftiðgeta sent póst á stina@koffort.is eða á inga@koffort.is.