Hjálp! Ég get ekki hætt að geispa!

July 8th, 20102:01 pm @ kristjana

0


Hjálp! Ég get ekki hætt að geispa!

Að sitja á rassinum 9-5 getur ekki verið svo erfitt er það? Þú hefur kannski þrætt þig í gegnum bókhaldsfrumskóg og mætt þar ýmsum hættum, lyft símtólum og hreyft fingur á lyklaborði en hreyfingar eru í lágmarki. Hvers vegna geturðu þá ekki hætt að geispa?
Sannleikurinn er sá að líkaminn þreytist jafnvel meira við kyrrsetuna og þá streitu sem verkefni dagsins á skrifstofunni framkalla. Hér eru fáein óbrigðul ráð fyrir geispandi gellur!

1. Vatn:

Eitt af betri ráðum sem vinkona mín heilsugúru og orkuboltinn gaf mér þegar ég nennti ómögulega að kíkja með henni í sund eftir vinnu var að fá mér vatnsglas og sjá svo til. Viti menn, tvö vatnsglös og þreytuslenið er á brott. Afhverju? Vatn nærir frumur líkamans og vekur hann til lífsins. Virkar miklu betur en þessi kaffibolli sem þú tilbiður. Hafðu vatnið kalt og þú hressist enn meir.

2. Stattu upp og teygðu úr þér:

Þú hefur heyrt þetta áður. En þetta virkar. Gerðu það að reglu að standa upp á klukkutímafresti og ganga stuttan hring. Ganga í tvær til þrjár mínútur er nóg. Þú eykur blóðflæðið og færð hjartað til að slá. Streitan lekur af þér og þú hressist.

3. Enginn sykur!

Láttu sykurinn vera hann étur orku! Veldu þér frekar brauð með grófu korni, prótín og grænmeti. Ég mæli með þessari samloku hér að neðan með besta túnfisksalati sem við Ynjur höfum smakkað (takk fyrir uppskriftina elsku Ylfa Geirsdóttir!)

Túnfiskpíta með kóríander:

Túnfisksalatið:

3  msk sýrður rjómi

hnefafylli af kóríander

örlítið cumin og garam masala krydd

1 tsk sterkt sinnep

smá slurkur af tabasco sósu

1- 2 soðin egg

1 dós túnfiskur í vatni

1/4 smátt skorinn laukur

Smátt skorin gúrka eftir smekk

Sett í gróft pítubrauð eða gróft brauð. Verði ykkur að góðu.

Tékkið síðan á þessum geispandi stjörnum. Ansi góðar geiflur. Við gefum Kim Kardashian fullt hús stiga fyrir góða teygju!

Geispandi stjörnur!