Við rýnum í sýningar tískuhúsanna og fáum vísbendingar um hvað verður heitt í hausttískunni. Hér kemur fyrsti hluti þeirrar umfjöllunar.
1. Móhair og stutt hár
Hugsið um Natöshu Kinski í mynd Wim Wenders frá 1984 en færið hana til nútímans. Klippingin sem hún ber á að verða sú allra heitasta í haust og dýrlegar móhair peysur eru heitar í öllum skilningi. Klæðið mýktina niður með leðri og rúskinni eins og Acne leggur til í haustlínu sinni þetta árið. (Sjá neðst í myndagallerí)
2. Kvennaher
Mörg af stærstu tískuhúsunum kynntu flíkur í ætt við herklæðnað í línum sínum. Þeirra á meðal voru Burberry, Etro og Joseph. Við kunnum vel við þessi áhrif þótt þau megi nota í miklu hófi og passa að máta fínlegri og sparilegri klæðnað við.
3. Flauel
Flauelsskór, jakkar og kjólar með grófari efnum sem hversdagsklæðnaður er trend hjá tískuhúsunum sem heldur áfram frá síðasta ári. Burberry kynnti vetrarkápur úr stungnu flaueli, Wang heila kisulórugalla og skó, Dolce og Gabbana fallega kjóla, Ralph Lauren flauelsbuxur og Karen Walker jakkaföt úr flaueli.
4. Loðfeldur í kápum og skóm
Loðkantar á skóm, hönskum, kápum og leðurjökkum er ekki óvenjulegt að sjá í haust -og vetrarlínum tískuhúsanna. Við þykjumst þó sjá enn meiri áherslu á slíkt efnisval í haust og vetur. Sérstaklega eru áberandi loðkantar í yfirstærð eins og mátti sjá hjá Kors, Burberrys, Marc Jacobs, Önnu Sui, Etro, Acne og fleiri tískuhúsum.
5. Yfirhafnir í yfirstærð
Í fyrrahaust var það kærasta-blazerinn eða jakkinn. Í ár gengur þessi nýlunda lengra. Grófir, karlmannlegir frakkar og jakkar í yfirstærð fara fínlegum konum ákaflega vel. Frakkarnir eru líka hentugur klæðnaður fyrir veturinn enda rúmast í þeim ullarpeysur og ef til vill mörg lög af hlýjum klæðnaði undir…
6. Hanskar
Áttu ekki hanska? Þá er ekki seinna vænna en að hugsa sitt ráð. Hanskar halda höndunum hlýjum en geta verið magnað stílbragð. Gegnsæjir, úr plasti, ull, leðri og með alls kyns skrauti á. Hanskar eru svo sannarlega fylgihlutur haustsins. Hanskar voru áberandi á sýningum Ann Dmeulemeester þar sem þeir voru meiriháttar pönkaðir með fjöðrum og silfurskrauti, Dries Van Noten, Marc Jacobs og á hátískusýningu Dior í París á dögunum.
7. Skörp!
Við þolum ekki illa sniðnar dragtir. Þær eru ljót, ferköntuð, teinótt fangelsi sem gera líkamann ólögulegan og líðanina slaka. Við elskum hins vegar dragtir sem brjóta allar reglur en fylgja fagurfræði og ýta undir kynþokka eða kvenkrafta. Slíkar dragtir eru ofurhetjubúningar nútímakonunnar…Meistarar þeirra eru Dries Van Noten, Ann Demeulemeester og af og til slær Dolce og Gabbana hreinan tón. Dragtin hér til hliðar frá Ann Demeulemeester er með fallegri flíkum kynntum til hausttískunnar í ár. Við elskum skörp litaskiptin (rautt og svart!) og aflíðandi sniðið sem er kvenlegt án þess að vera væmið eða of bombulegt.
Hausttískan-myndasafn
- Hvít síð móhair-peysa frá Acne
- Natasja Kinski í mynd Wenders: Paris,Texas
- Dökkbláar sjóliðakápur og leður!
- Fínlegir brúnir tónar hjá Joseph
- Flauelsskór frá Wang
- Silkibuxur frá Dries Van Noten
- Vetrarkápa með lambsskinnskraga í yfirstærð frá Joseph
- Leðurjakki og skór með loðkanti frá Acne
- Loðskór með kanti frá Acne
- Loðkantar fyrir stráka frá Kors
- Loðkápa með hettu frá Kors
- Hanskar frá Dries Van Noten við peysu og pils
- Hanskar frá Dmeulemeester minna á hrafnsvængi
- Háir hanskar frá Ann Dmeulemeester
- Skarpir litir frá Ann Dmeulenmeester
- Flauelskjóll frá Gabbana
- Jakki í yfirstærð frá Marc Jacobs
- Skörp-dragt frá Kors
- Skörp dragt frá Dries Van Noten
- Loðkragi frá Marc Jacobs
- Frakki í yfirstærð frá Marc Jacobs
- Hermannaklæði frá Rag and Bone
- Flauel! Alexander Wang; Ralph Lauren; Karen Walker; Thakoon

































July 6th, 2010 → 12:15 pm @ kristjana
0