Þið ykkar sem þolið ekki óhreinindi-hættið að lesa núna. Og þið ykkar sem eigið það til að slugsa við heimilisþrifin lærið ykkar lexíu og endilega lesið áfram um sorglegt og bókstaflega sóðalegt líf tveggja hefðarkvenna.
Frú Edith Bouvier Beale og dóttir hennar Edie, kallaðar stóra Edie og litla Edie voru náskyldar frænkur forsetafrúnnar Jacqueline Kennedy Onassis. Um þær var gerð hin víðfræga heimildarmynd; The Gray Gardens árið 1976. Myndin vakti mikla athygli á kvikmyndahátíðinni í Cannes það árið enda höfðu þær lagt undir sig forsíður stærstu dagblaða heims árin áður fyrir sérviskulega lifnaðarhætti, sóðaskap og ólifnað.
Saga þeirra er hreint ótrúleg. Mrs. Beale var fædd í yfirstéttarfjölskyldu, systir Jack Bouvier, föður Jackie O. Edie sem ávallt var kölluð “Litla Edie” var ægifögur og efnileg leikkona sem yfirgaf glaum og glys New York borgar til þess að annast og eyða lífi sínu með móður sinni.
Saman hurfu þær smá saman í undarlegan sérviskuheim sem fáir skildu. Eftir því sem árin liðu einangruðu þær sig æ meir og fóru helst ekki út úr húsi. Báðar voru þær glæstar og hæfileikaríkar konur sem tóku þá undarlegu ákvörðun að draga sig með öllu úr samfélaginu og loka sig af á yfirstéttarheimili sínu. Heimili þeirra, Grey Gardens í ríkra manna hverfinu Austur-Hampton, var eitt sinn glæst og reisulegt. En mæðgurnar hirtu ekkert um hreinlæti og viðhald og árið 1971 var ástand hússins verulega slæmt. Flær, villikettir og þvottabirnir gerðu vistarverur þeirra að sínum, í húsinu var ekkert rennandi vatn og megn stækur af rusli og óhreinindum fylltu vit þeirra sem sóttu þær mæðgurnar heim.
Heilbrigðisyfirvöld sóttu þær heim og hótuðu að láta bera þær út og að þeim var sótt úr öllum áttum. Fjallað var um málið sem mikið hneyksli í helstu dagblöðum þar ytra og vegna tengslanna við Jackie urðu þær mæðgur hreinlega alræmdar. Árið 1972 tók Jackie O tók til sinna bragða og lét gera við húsið enda sætti hún gagnrýni fyrir að láta nákomna ættingja sína lifa við svo óviðunandi aðstæður.
Það er um þetta leyti sem þær litla og stóra Edie opna heimili sitt fyrir kvikmyndatökumönnum sem vilja gera um þær heimildarmynd og útkoman er hreint óborganleg. Little Edie er tískugúrú og finnst hún engu minna en stórkostleg með heimatilbúin höfuðföt og saman eru þær skrautlegt teymi. Stóra Edie syngur og litla Edie dansar um rotnandi hýbýlin og segir leikstjóranuum frá vonum sínum ódauðlega ást, frægð og frama.
Innblástur listamanna
Mæðgurnar hafa orðið ótal listamönnum innblástur. Geysivinsælir sjónvarpsþættir HBO byggðir á lífi þeirra raka til sín verðlaunum. Stóru Edie leikur Jessica Lange og litlu Edie leikur Drew Barrymore.
Þær hafa setið fyrir í ítalska Vogue og tískuþættir þeim til heiðurs gerðir í sama blaði. Þá vakti mikla athygli tískuþáttur í Harpers Bazaars árið 2007 þeim til heiðurs. Leikkonurnar Lauren Hutton og Mary Kate Olsen brugðu sér í hlutverk litlu og stóru Edie.
Stóra Edie lést árið 1977. Ári seinna flyst litla Edie úr húsinu og lést sjálf árið 2002, 84 ára gömul.
- Litla og stóra Edie í ítalska Vogue
- Mary Kate sem litla Edie á forsíðu Harpers Bazaar
- Edie í stofunni í Grey Gardens. Dósir utan af kattamat í bakgrunni.
- Edie var sannarlega fögur á yngri árum
- Úr myndinni Grey Gardens-stóra Edie eyddi mestum tíma í rúminu
- Edie pelsklædd með túrban fyrir utan heimili sitt
- Edie tískuþáttur í ítalska Vogue
- Litla og stóra Edie
Brot úr sjónvarpsþáttum HBO; Grey Gardens














July 2nd, 2010 → 4:45 pm @ kristjana
0