1. Áfangastaðurinn!
Hvort sem áfangastaðurinn er sódóma gómorra eða lítil laut í Hvalfirði þarf að vanda áfangastaðinn vel um verslunarmannahelgina. Ölvað gítarspil til klukkan 7 um morguninn er ekki allra og það eru heldur ekki glaðvakandi börn sem í sakleysi sínu kljúfa þynnkuheila eins og samúræjar. Farðu með börnin á barnvænan áfangastað þar sem áfengi er ekki haft um hönd og farðu með ótt vinkonustóðið þangað sem gleðin stendur hæst.
2. Nestið
Nestið klárast alltaf. Það segir útilegulögmálið. Vertu svolítið forsjál, pakkaðu nestinu eins og geimfari og smyrðu aukabirgðir. Mikið af flatkökum með hangikjöti og taktu með þér nokkrar blokkir af suðusúkkulaði. Svo er það þannig að feitt og salt kjöt slær alltaf í gegn. Beikon og pylsur, borgarar og kótilettur og hrásalat með!
3. Dýnur og flísteppi
Það munar mikið um að sofa á góðu undirlagi. Geðstirðir ferðalangar boða ekki gott. Við elskum velúrvindsængur, sumarsængur og fullt af koddum til að gera vistina þægilega. Við vildum líka óska þess að þessi uppblásnu tjaldvagnatjöld væru boðleg á markaðnum.
4. Gönguskór
Við skiljum letihaugana fyllilega og erum ákaflega stoltar af þeim að rúlla sér í sveitin til að flatmaga í grænni lautu. En fyrir þá sem vilja frekari ævintýr er upplagt að reima á sig gönguskóna, kanna nálægar lendur og taka myndavélina með.
5. Í einrúmi
Fyrirhugaður brekkusleikur 2010 í Vestmannaeyjum… Iðandi brekka af slefandi tungum? Við gamalmennin ættum kannski að slappa af yfir þessari aftöppun á hormónum og fara í útilegu að okkar hætti. Við vitum samt ekki hvort við eigum að hlæja eða gráta og kjósum ástarleikina í einrúmi.
6. Klósettpappír og tannbursti
Einhverjir gleyma þessum nauðþurftum meðan aðrir berja sér á brjóst og segjast vilja harðkjarna útilegu án nútímaþæginda. Við erum ekki meðal þeirra og getum talið upp ýmis þægindi sem koma síðar í forgangsröðinni…eins og til dæmis ALLT.
7. Góðir ferðafélagar
Fjölskyldan er traustverðug en þegar stórir vinahópar safnast saman er misjafn sauður í mörgu fé. Raðaðu vel í tjaldið þitt og passaðu þig á ferðafélaganum sem gleymdi nestinu (og öllu öðru) og þeim sem kann aðeins að leika Stál og hnífur á gítarinn.
8. Ofnæmistöflur og verkjalyf
Hvort sem um er að ræða óvænt ofnæmiskast í miðju frjókornaskýi eða tilfallandi höfuðverk vegna of mikillar gleði þá bregður stórum skugga á tilveruna sé henni eytt í þjáningu í mollulegu tjaldi.
9. Varnarbrögð
Staðreyndin er sú að í samfélagi okkar þrífst ofbeldi og kynferðisglæpir. Konum er nauðgað á Íslandi og að um verslunarmannahelgina er ávallt tilkynnt um nauðgun á mannamótum. Konur og karlar eiga bæði að vera á varðbergi fyrir þessum viðbjóðsglæp og stöðva hann sé það mögulegt. Nauðgarar eiga vini og félaga og fórnarlömbin líka. Stöndum vaktina!
10. Allt í hófi
Við mælum með fjögurra drykkja reglunni og því að halda rónni. Ekki færa kokkteilbarinn úti í guðs græna náttúruna þar sem þú kemst ekki heim! 4 drykkir og ekki meira á einu kvöldi er kappnóg og slepptu glamúrgallanum. Taktu með þér úrval annarra óáfengra drykkja til að drekka með svo að þú sért ekki ofurseld slepjulega óvini þínum honum Bakkusi.



July 29th, 2010 → 10:42 am @ kristjana
0