Vampírukynlíf…

June 28th, 20109:48 am @ kristjana

0


Vampírukynlíf…

Vampírur eru hömlulausar – Þær heilla okkur en hræða okkur um leið. Af öllum skrímslum skáldheimsins eru vampírur þær sem helst eru tengdar við kynlíf. Vampírur hafa kynlífstengingu og eru þess vegna heillandi. Þær eru hömlulausar í náttúru og þess vegna hræðumst við þær.

Konur og vampírur- Að leggjast með ljóninu

Kynlíf með vampíru er ekki svo frábrugðið því að leggjast með mennskum karlmanni. Hvort tveggja hefur í för með sér stórkostlega hættu. Annars vegar dauða, og hins vegar bindingu. Vampírur tákna allt sem við óttumst og heillumst um leið.

Ímynd vampírunnar sem dregin var upp í myndinni um Drakúla var speglun á Viktoríutímanum. Kastali Drakúla var ekki kastali heldur tákn kvenskapa. Þar bjuggu konur Drakúla, gengi tælandi blóðsuga. Einkenni Viktoríutímans var tepruskapur og hræðsla við kynlíf og kynhneigð kvenna.  Drakúla táknaði fortíðina, vald og einræði. Auk þess var hann heillandi og það þýddi að hann hafði möguleika til að hrífa fólk með sér aftur í fornaldir.

Félagslyndar verur í dimmu nætursamfélagi

Vampírur dagsins í dag bera einhver skilaboð. Hvað er það í dag sem er heillandi en forboðið um leið? Vampíruþættirnir “True Blood” hafa slegið í gegn. Þar er dreginn upp heimur þar sem vampírur búa innan um menn og berjast fyrir réttindum sínum rétt eins og hver annar minnihlutahópur. Fókusinn er ekki frekar á yfirnáttúru þeirra heldur en á samskipti þeirra við menn. Ljón sem leggjast með lömbum. Samskipti milli vampíranna sjálfra eru líka spennandi. Þetta eru félagslyndar verur sem eiga sér heilan heim, dimmt nætursamfélag.

Finna konur til samsömunar með vampírunum? Sookie er mennsk kona sem virðist eiga í vandræðum með að þekkjast eigin náttúru. Það heillar hana og hræðir í senn að takast á við óra sína. Hún dregst að vampírunni sem býr í nágrenni við hana, og daðrar við hættuna.

Vampírur gætu verið fínasta fyrirmynd fyrir okkur konur. Við heillumst af þeim og þurfum að taka þær okkur til fyrirmyndar – leyfa okkur sama hömluleysi og kanna eigin náttúru. Kynlíf er kynlíf alveg eins og blóð er blóð. Við þurfum ekki að pæla of mikið í hlutunum. Kynlíf og hömluleysi er það sem heillar og hræðir um leið. Ennþá.

Fullnægingaríkt vampírukynlíf

Líkt og vampíran þekkir sjálfa sig og þarfir sínar er nauðsynlegt að við konur gerum það líka. Í rannsókn  sem birtist í International Journal of Sexual Health í september 2009 kemur fram að konur sem hafi jákvæða heildstæða mynd af sjálfri sér, kynfærum og kynhneigð sé líklegri til að lifa fullnægingaríku kynlífi og passa upp á kynheilsu sína. Það hefur orðið skuggalega algengt sjónarmið í okkar menningarsamfélagi að kynfæri kvenna séu fyrst og fremst óhrein og þurfi að þrífa og snyrta. Konur eru jafnframt mun dómharðari á líkama sína og líkama annara kvenna heldur en á líkama karlmanna. Karlmenn höfðu samkvæmt umræddri könnun mun jákvæðari mynd af kynfærum kvennanna heldur en þær sjálfar.

Við þurfum að losa okkur við þessa dómhörku og Viktoríönsku tepru og leyfa okkur hömluleysi og hreinskiptni vampírunnar. Hér er ekkert að hræðast.