Skrýtnar stelpur

June 23rd, 201011:12 am @ kristjana

0


Skrýtnar stelpur

Íslenski listahópurinn The Weird girls project hefur vakið mikla athygli víða um heim síðustu ár. Hópurinn er skipaður hátt í sextíu stúlkum sem eru flestar á þrítugsaldri og hefur tekið þátt í fjöldanum öllum af uppákomum sem leiðtogi hans og hugmyndasmiður Kitty Von Sometime hefur skipulagt.

Við ræddum við Kitty um verkefnið og innblásturinn að því, væntanlega yfirlitssýningu og stuttmynd um Weird Girls sem er í vinnslu um þessar mundir.

“Ég hef ástríðu fyrir þessu verkefni af mörgum og ólíkum ástæðum,” segir Kitty. ”Mér finnst stelpur yfirhöfuð of uppteknar af útliti sínu og líka því hvað þær eiga að vera og hvaða hópi þeim finnst þær eiga að tilheyra. Það er takmarkandi að taka sig svo hátíðlega. Þú reynir ekki nýja hluti, kynnist ekki nýju fólki og fyrst og fremst þá lendir þú ekki í ævintýrum. Ég sjálf upplifði þetta sterkt þegar ég kom hingað til lands og reyndi að brjóta upp þetta félagslega mynstur.”

Hvað er með allt þetta spandex?

Búningarnir sem stelpurnar klæðast eru oft þröngir og úr spandexi. Kitty segist vera hrifin af spandexinu. “Spandex-efnið ýtir undir kvenlegan vöxt. Það er ekki hægt að fela sig í spandexi og sumar konur hræðast slíkt meira en allt annað. Ég vil stuðla að sjálfsöryggi með sérstakri áherslu á líkamlega sjálfsmynd.”

Kitty segir að óvissan sé þó líklegasta það sem sé mest spennandi og krefjandi við verkefnið. “Það þarf að stíga út úr þægindahringnum til þess að leyfa annarri manneskju að stýra þér í óvissu. Verkefnið í sjálfu sér vekur athygli á inntaki gjörningsins og styrkleiki hans felst í viðbrögðum kvennana við þeirri óvissu sem fylgir hverju þeirra. Þær konur sem taka þátt þurfa að bregðast við, sameinast búningnum og hópnum. Stúlkurnar í hópnum fá aldrei að vita hvert verkefnið er eða hvaða búningum þær eiga að klæðast fyrr en á hólminn er komið. Þær vita að þær verða ljósmyndaðar og kvikmyndaðar. ”

Venjulegar, skrýtnar konur…

Kitty segir mikinn fjölda kvenna hafa komið að verkefninu. “Þær sem taka þátt hafa ólíkan bakgrunn og reynslu og þekkja hverja aðra ekki endilega fyrirfram. Þetta eru venjulegar íslenskar konur, segir Kitty frá. Ekki endilega allar leikkonur eða fyrirsætur og það er hluti af því sem mér finnst spennandi við verkefnið,” bætir hún við.

Um viðbrögð við verkefninu segir Kitty það vera jafnáhugavert og að fylgjast með viðbrögðum kvennana bregðast við ólíkum aðstæðum. “Ég vil ekki stýra upplifun eða gefa frá mér sterk skilaboð um hvert inntak verkefnisins á nákvæmlega að vera. Ég vil frekar fylgjast með, öll upplifun á rétt á sér. Sumum gæti fundist verkefnið fela í sér skilaboð til samfélags, öðrum finnst það fyrst og fremst listviðburður og enn öðrum finnst þetta alger vitleysa.”

Weird Girls á Jónsvöku

“Ég hef unnið að þessu verkefni í þrjú ár og afraksturinn nú er  11 myndaþættir.  Sunnudaginn 27.júní verður yfirlitssýning yfir verkefnið í heild á Nýlistasafninu.  Sýningin er haldin í tengslum við Jónsvöku sem er ný listahátíð haldin dagana 24. -27.júní nk. Á sýningunni verður einnig  sýnt myndbrot úr væntanlegri stuttmynd um The Weird Girls Project. “Stuttmyndin er ekki tilbúin en það verður sýnt brot úr henni,” segir Kitty frá. “Myndatökumaður hefur fengið að fylgja mér eftir í nokkrum verkefnum og vinnur nú að því að ljúka við gerð stuttmyndar um verkefnið. Forvitnir geta litið á afraksturinn á Nýlistasafninu á sunnudaginn.”

Myndband úr verkefni 8: Kaleidoscobes og Agent Fresco

Myndasafn úr 10 verkefnum Weird Girls: