Haruki Murakami er líklega einn áhrifamesti skáldsagnahöfundur samtímans. Við Ynjur veðjum á tilnefningu hans til Nóbelsverðlauna og ef þið hafið ekki lesið bók eftir Murakami þá er ekki eftir neinu að bíða. Bækur hans seljast í milljónaupplögum um heim allan og hafa verið þýddar á yfir 40 tungumál.
Skáldskap hans má líkja við japanska matargerð sem er bæði framandi og hefðbundin í senn og maturinn borinn fram fyrir öll skynfæri líkamans.
Einn þýðenda bóka hans, Jay Rubin segir lestur bóka hans breyta heilastarfseminni fyrir fullt og allt og hans heitustu aðdáendur eru til að mynda Sofia Coppola og hljómsveitarmeðlimir Flaming Lips. Í rauninni hefur Murakami mikla og óvænta tengingu við tónlistarheiminn.
Að snúa takti í texta
Í skáldsögum Murakami hafa aðalsöguhetjurnar ávallt mikinn áhuga á tónlist, þá helst klassískri tónlist, jazzi, blúsi og rokki. Ástæður þessa segir Murakami vera þá að hann noti tónlist sem innblástur við skrifin: “Þegar ég skrifa þá laumast tónlistin alltaf með á síðunar,” segir hann frá. “Ég ætlaði heldur ekki að verða rithöfundur, segir hann ennfremur frá. “Ég ætlaði að starfa við tónlist.”
Hann segir fyrstu kynni sín af jazztónlistinni hafa verið þegar hann var 15 ára gamall. Þá hafi hann hlustað hann á Art blakey and the Jazz mMessengers spila í Kobe í Japan. Tónleikarnir hafi verið ein djúpstæðasta upplifun lífs hans og eftir þá hafi hann einsett sér að lifa og hrærast í tónlist. Hann safnaði peningum og fékk lán frá vinum og ættingjum og eftir menntaskólanámið opnaði hann lítinn jazzklúbb í Tokyo. Haruki rak klúbbinn í heil sjö ár af einni ástæðu, þeirri að hann gat hlustað á jazz frá morgni til kvölds.
Hann segist snúa tónlist og rythma innra með sér í sögur og texta. Allt sem hann hafi lært um að skrifa skáldsögur hafi hann lært af því að hlusta á tónlist. Ef hann hefði ekki haft þráhyggju fyrir tónlist væri hann ekki rithöfundur í dag. Honum finnst sömu fagurfræðilegu lögmál gilda um tónlist og ritað mál. Hljómfall og taktur, tjáning og samhengi skapi heildaráhrif ritaðs máls jafnt og tónlistar.
Helstu áhrifavaldar Murakamis eru Charlie Parker, Miles Davis og jazzpíanistinn Thelonious Monk og uppáhaldsiðja hans í æsku var að hlusta á tónlist og lesa bækur.
Hann hafði engar fyrirætlanir um að verða rithöfundur eða skrifa bók þangað til hann var orðinn 29 ára gamall. Hann segir það hafa verið sökum lítils sjálfstrausts og þess hve tónlistin átti hug hans allan.
Við heiðrum herra Murakami með því að fletta í gegnum bækur hans og þau lög sem hann fléttar í hverja sögu. Lögin skipta hundruðum svo við höldum okkur við að tiltaka eitt lag á hverja af vinsælustu bókum hans.
Murakami-mix
1. After the Quake:
Alive- Pearl Jam:
&
Piano concerto no 1. Liszt: Hlustið
2. Kafka on the Shore:
My favorite things- John Coltrane
4. Hard-boiled Wonderland:
Positively 4th street- Bob Dylan Hlustið
5.Norwegian Wood:
Norwegian Wood- Bítlarnir
og Desafinado- Joao Gilberto Hlustið
Dear heart- Henry Mancini
6. The Elephant vanishes:
Night and Day- Frank Sinatra




June 10th, 2010 → 9:46 am @ kristjana
0