Lýðveldið Ísland á afmæli á morgun og því tilvalið að klippa aðeins og líma því til heiðurs.
Þessar einföldu rellur gleðja unga sem aldna og koma öllum í sannkallað hátíðarskap*
Þú þarft:
Þykkan pappír og /eða litríkan
Límstifti (ef þú vilt líma pappír saman til þess að fá þykktina)
Skæri
Heftara
Hamar
Nagla (betra að hafa þá svolítið langa svo rellan snúist auðveldlega, ég notaði stálnagla 2,0 x 30 mm)
Prik (jafnvel hægt að nota trjágrein)
Bókaplast (fyrir þá öruggu sem vilja verja relluna sína fyrir veðri og vindum)
Aðferð:
- Pappírinn er klipptur í ferning í stærð að eigin vali.
- Pappírinn er skreyttur ef hann er ekki þeim mun skrautlegri fyrir.
- Miðjan er fundin og merkt.
- Klippt á ská að miðjunni (ekki alla leið)
- Hornin brotin að miðjunni (sjá myndir)
- Hornin eru heftuð niður.
- Naglinn er notaður til að gera gat í miðjuna og hreyfður til að stækka gatið örlítið
- Neglið loks naglann í gegnum relluna og prikið en ekki alla leið
- Hlaupið um með nýfengna rellu, syngið hástöfum og verið glöð.
*Rellurnar má nota við öll hátíðleg tilefni*
Myndir og texti: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir




















kristjana
1 Ár síðan
Fékk póst frá leikskólakennara sem segir mér að ýmislegt dugi að nota sem prik. Það má jafnvel nota dagblað og rúlla því upp og líma svo með málningarteipi. Til að halda rellunni fastri má líma eitthvað á naglhöfuðið, til dæmis tölu. Gangi ykkur vel!
Kolla
1 Ár síðan
Já möguleikarnir eru óþrjótandi og um að gera gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn…mig langar til dæmis að prófa að gera risarellu;)
arna
1 Ár síðan
Þetta er æðislegt! Mig hefur lengi langað að gera svona fyrir afmæli. Ætla að láta verða af því
Bryndís Ýr
1 Ár síðan
Meiriháttar! Kolla, þú ert snilli!