Hver drap Wonderwoman?

June 19th, 20107:49 pm @ kristjana

2


Hver drap Wonderwoman?

Dóttir mín er dottin í bleiku bombuna. Augu hennar ljóma þegar hún kemur auga á eitthvað bleikt, útsett í glimmeri.

Þetta er augljóslega einlæg hrifning og ég sofna af leiðindum ef að enn einn fræðingurinn heldur yfir mér tölu um að það sé félagsþrýstingur og uppeldi sem valdi “bleikri örvæntingu” lítilla stúlkna.

Meðan hún spásserar um í bleika kjólnum þá finnst henni samt lítið varið í að svífa um og vera “góð”. Henni finnst skemmtilegt að horfa á hasarþættina Ben 10 um stökkbreytt skrímsli og mixar því svolítið bleiku stemninguna. Bleika ofurhetjan Spidermonkey! Einhver heyrt um hana? Hún er allavega heima í stofunni hjá mér og virkar ógnvænleg þar sem hún stekkur, urrandi um í sykursætum Disney kjól.

"Það eina sem hún gerir er að sofa..."

Stelpur kunna að meta góða sögu jafnt og strákar og þess vegna á hasarinn í Ben 10 alveg jafnmikið erindi við hana og bræður hennar sem sitja límdir yfir skjánum. Góð leið til að fá stúlkuna til að rotast úr leiðindum er að lesa fyrir hana Þyrnirós eða melódramað um Fríðu og Dýrið. Bróðir hennar benti á augljósa vankanta sögunnar um Þyrnirós. “Það eina sem hún gerir er að sofa…” Mikið rétt. Börnin eru oft skarpari en við hin fullorðnu. Þetta er verulega leiðinleg saga!

En hvað er þá hægt að bjóða bleikklæddri spidermonkeydrottningu uppá? Bræður hennar eiga Ben 10 nestisbox, alls kyns hetjufígúrur og óteljandi ofurhetjubúninga.  Að sjálfsögðu gæti ég boðið henni upp á slíkt hið sama og vippað dömunni í ógurlegan Ben 10 skrímslabúning og splæst á hana grænu Ben 10 skrímslanestisboxi. En hvað með þessa einlægu hrifningu hennar á öllu því sem er bleikt og glimmerskreytt? Þarf hennar heimur að vera svo tvískiptur? Er ekkert pláss fyrir súperdúper bleika ofurhetju sem hrýtur ekki dagana langa  eða bíður eftir því að giftast… heldur lemur á stökkbreyttum skrímslum?


“Íslandshetja en sko samt ekki karl…”

Teiknimyndasagan Sheena var vinsæl meðal stúlkna (1941)

Að sjálfsögðu eru nóg pláss og í raun eru þessar vörur til. Allt er til. Það eru líka til óteljandi flottar kvenofurhetjur. Wonderwoman, Supergirl, Firefly, Barbarella….

Á gullaldartíma teiknimyndasagna þá lásu fleiri stelpur en strákar hasarblöð. Vissuð þið það? Þá voru til frábærar teiknimyndasögur um klikkaðar frumskógagellur sem átu ljón og fíla í morgunmatinn.

Jú þetta er allt saman til en gleymt og grafið. Eða hvar eru fígúrurnar, skólatöskurnar og nestisboxin?  Þær eru alla vega ekki áberandi í leikfangaverslunum.  Þessar vörur má kannski berjast um á uppboði fyrir sjaldgæfa hluti á Ebay?

Staðreyndin er þessi: Stórfyrirtæki sem framleiða leikföng og markaðsvörur telja ungar stúlkur ekki vilja vera ofurhetjur.

Og jú það er reyndar þannig að ofurhetjufílingurinn er ekki besti stemmarinn meðal stelpna. Ég varð vitni að því þegar ég heimsótti leikjanámskeið í þessarri viku. Börnin áttu að mæta í ofurhetjubúning á þemadegi. Ég horfði yfir hópinn sem var blandaður hópur stelpna og stráka á aldrinum 6-9 ára. Strákarnir voru klæddir í klassíska ofurhetjubúninga, inná milli nokkrir ninjastríðsmenn og stöku vampíra. Stúlkurnar höfðu greinilega mætt vandræðagangi foreldra sinna í leit að hetju handa stúlkunum sínum því flestar voru þær í nornabúningi! (nornir gætu reyndar verið svalar ofurhetjur). Aðeins ein stúlka var klædd í hetjubúning og hann var heimatilbúinn og nokkuð flottur. Með svarta skikkju í bleikum kettlingabol í stuttbuxum yfir gammósíur. Ég spurði hana hvaða hetja hún væri og hún svaraði: “Ég er sko Íslandshetja en ég er sko samt ekki karl eins og í bókunum…”

Það er meiriháttar að máta sig í hlutverk ofurhetju. Ofurhetjur eru ósigrandi, þær geta hreinlega allt og hafa dulda og ótrúlega merkilega hæfileika sem aðrir dást að. En eitthvað gerðist sem drap Wonderwoman, Firefly og Barbarellu og eitthvað gerðist sem olli því að lestur ungra stúlkna á hasarblöðum hrundi. Eigum við ekki að tékka aðeins á þessu og kippa í liðinn? Ofurhetjugellurnar rosalegu safna ryki og á meðan leiðist litlum sprellfjörugum, hasarsjúkum bleikum prinsessum.

Gleðilegan 19.júní

Kristjana Guðbrandsdóttir