Hnattsigling Abby

June 11th, 201012:39 pm @ kristjana

0


Hnattsigling Abby

Abby og Wild Eyes úti á rúmsjó

Við Ynjur elskum ævintýragjarnar og djarfar konur og fyllumst lotningu þegar við fréttum að ungum eldhugum eins og Abby Sunderland.

Abby er sextán ára og hafði það að markmiði að verða yngsta manneskjan til að sigla einsömul í kringum hnöttinn.  Hnattsiglingin hefur verið mikil svaðilför og í gær hvarf hún í miklu fárviðri á Indlandshafi. Hún náði að hafa samband við foreldra sína í gervihnattasíma, er nú komin í leitirnar heil á húfi en er ekki komin í land enn.

Abby fylgir í fótspor bróður síns, Zac Sunderland, sem sigldi í kringum hnöttinn einn síns liðs í fyrra. Þá var hann 17 ára gamall. Hún lagði af stað frá Kaliforníu 23. janúar sl. og stefndi að því að slá met hans.

Heimssiglingin

Abby hélt af stað frá Kaliforníu á bát sínum sem hún kallar “Wild Eyes”.  Hún þurfti að stöðva ferð sína í Mexíkó vegna þess að henni þótti sólarrafhlöður bátsins ekki skila nægilegri orku. Hún hóf aftur ferðina 6.febrúar og sigldi þá yfir miðbaug. Hún lenti aftur í vandræðum rétt utan við Höfðaborg í S-Afríku og þurfti viðgerð á bátnum. Í gær lenti Abby svo í miklum vandræðum í Indlandshafi. Veður var vont og eftir mikinn ágang vinda og sjós brotnaði mastur bátsins og Abby þurfti að senda neyðarkall eftir hjálp.

Hún segist hafa verið undirbúa ferðalag sitt frá því hún var 13 ára og fylgdist með bróður sínum Zac takast að sigla í kringum hnöttinn aðeins 17  ára gömlum. Hún ætlaði sér að fylgja í hans fótspor.  Faðir hennar er reyndur siglingamaður, Laurence Sunderland og hann hefur séð til þess að Abby er útsjónarsöm og reynslurík siglingarkona þrátt fyrir ungan aldur . Hann hefur sagt hana verið meðal þeirra bestu í heimi, seigla hennar og útsjónarsemi sé einstök. Foreldrar hennar hafa verið gagnrýndir í fjölmiðlum fyrir að hleypa ungri stúlku í svo mikla svaðilför en lítið hefur heyrst af slíkri gagnrýni þegar litlu eldri drengir leggjast í sömu hættur.

Horfið á þetta viðtal við hana þar sem hún lýsir metnaði sínum og áætlunum um ferðalagið.

Abby er að skrifa bók um ferðalag sitt og heldur einnig úti bloggi þar sem hún leyfir lesendum að fylgjast náið með ferðalagi sínu. Við birtum hér brot úr færslu af blogginu daginn áður en hún lenti í mikilli hættu og sýnum ykkur nokkrar myndir sem hún hefur tekið í S-Afríku og á Indlandshafi síðustu dagana.

Úr bloggi Abbyar 9.júní:

Miðvikudagurinn 9.júní

Erfiðir dagar

“Síðustu daga hef ég haft mikið fyrir stafni. Veður hefur verið vont og vindurinn helst í 40-45 hnútum og rýkur upp stöku sinnum. Dagurinn í dag hefur þó verið ágætur og gefið mér tækifæri til að dytta að bátnum. Wild Eyes stóð veðrið ágætlega af sér en eftir dag þar sem vindurinn hélst í 50 hnútum þá eru verkefnin mörg. Vindurinn hefur haldist í 20 hnútum í dag ég hafði vonast eftir slíkum degi til að bæta seglin. Ég býst við verra veðri svo ég var ekk viss um hvenær mér gæfist færi á viðgerðum næst. Mér tókst að taka seglið niður, staga í það og setja það upp aftur á fáeinum dögum. Þetta var ekki það auðveldasta sem ég hef gert í þessari ferð því veltingurinn var brjálaður. Auðvitað gerðist það svo að um leið og ég setti seglið upp að vindurinn datt úr 20 í 10 hnúta.

Thrane og Thrane (Internetið) hrundi svo ég get ekki notað það til að pósta á bloggið. Búnaðurinn hefur líklega skemmst, býst við að vatn hafi flætt inn í hann. Ef að það er málið þá get ég ekki leyst það sjálf. En ég er með símana mína svo ég get hringt í mömmu og lesið upp fyrir hana hvað skal skrifa.

Það bætir verulega í vindinn núna. Hann er kominn upp í 20 hnúta. Ég hugsa að hann fari upp í 35-50 hnúta og að um miðnætti jafnvel upp í 60 hnúta svo það er best að ég leggi mig núna.

Abby.

Nokkrar staðreyndir um Abby Sunderland

Fædd: 10.19.1993

Heimabær: Thousand Oaks, Kalifornía

Fyrsta siglingin: 6 mánaða

Fjölskylda: Næstelst af sjö systkinum

Áhugamál: Siglingar, ævintýri, listir og dýr

Myndir úr lífi Abby