Gulrótasúpa

June 7th, 201010:14 pm @ kolla

2


Gulrótasúpa

Þessi súpa er einföld, holl og afar bragðgóð.

Uppskriftin er fyrir 6 manns en af reynslunni að dæma dugar hún fyrir u.þ.b. 3-4  svanga. Það er því sniðugt að tvöfalda uppskriftina ef þið eruð fleiri eða viljið eiga afgang daginn eftir*

Hráefni:

1 laukur saxaður smátt

1 hvítlauksgeiri (ég set alltaf meira)

1 rifinn engifer ca. 4 cm

Olía til steikingar- kókosolía þolir mikinn hita.

Handfylli af kóríander smátt saxað

1 tsk turmerik

1 tsk broddkúmen

Smá cayennapipar

4 tómatar

3 bollar af smátt skornum gulrótum

Lífrænn grænmetiskraftur 2 msk  (hægt að nota jurtir í staðinn)

1/2 l vatn

1 dós kókosmjólk

smá sítrónusafi

salt og pipar eftir þörfum

Aðferð:

1. Léttsteikið grænmetið í olíu og þurrkryddum.

2. Bætið vatni út í og sjóðið í 20 mínútur eða þar til gulræturnar eru orðnar mjúkar.

3. Bætið söxuðum tómötum saman við, ásamt kókosmjólk kryddum, salti og pipar.

4. Maukið súpuna með töfrasprota og smakkið til með sítrónusafa og ferskum kóríander.

5. Leyfið súpunni aðeins að standa og taka sig áður en hún er borin fram.

Verði ykkur að góðu