Fegurðarráð frá Tinnu Bergs

June 18th, 20109:06 am @ kristjana

0


Fegurðarráð frá Tinnu Bergs

Toppfyrirsætan Tinna Bergsdóttir minnir okkur í útliti á bæði Brigitte Bardot og Jane Birkin. Ferill hennar sem fyrirsætu blómstrar og hún hefur einnig reynt nokkuð fyrir sér sem leikkona.  Hún leyfir okkur að skyggnast í snyrtiveskið og segir okkur af helstu galdrabrögðunum.

Hvernig hugsarðu um húðina?

Ég reyni fyrst og fremst að þrífa allan farða vel af áður en ég fer að sofa, en ég er nýbyrjuð að nota hreinsivörur frá Lancome (hreinsimjólk og tóner) sem ég er mjög ánægð með. Svo nota ég 1-2 í viku vörur frá Blue Lagoon, maskinn þeirra er alveg frábær og húðin glansar alveg rosalega eftir á. Svo nota ég besta dagkrem sem til er og heitir Embryolisse og fæst bara í París, flest allar fyrirsætur og förðunarfræðingar nota þetta krem. Ég reyni líka að drekka mikið vatn fá nógan svefn en ég sé það mikið á húðinni ef ég sef ekki nóg og er að ferðast mikið

Hvaða snyrtivöru geturðu ekki verið án?

Ég elska MAC varasalvana, sérstaklega hvíta sem gefa bara smá gljáa engan lit.

Hvaða ilmur er í uppáhaldi?

Ég elska alla ilmi frá Dior og á nokkra. Uppáhalds er Hypnotic Poison

Fegurðarráð?

Nóg af vatni og svefni…

Hvað hefurðu í snyrtibuddunni þegar þú ert að vinna?

Mac varasalvann minn og MACbaugafelara annars þarf ég ekkert snyrtidót þegar ég er að vinna.

Er eitthvað sem þú hefur notað á húðina sem þú hefur aldrei notað aftur og vilt vara aðrar við að nota?

Nei ekki í fljótu bragði… Ég er með mjög þægilega húð, er ekki með ofnæmi fyrir neinum vörum og fæ sjaldan bólur þannig ég hef aldrei brennt mig á neinu.

Er einhver förðun sem fer þér ekki vel?

Mér finnst ekki flott þegar ég er máluð of mikið bæði um augun og varir. Og mér finnst flottast þegar ég er máluð mikið um augun og með nude varir.