Er að sjóða uppúr?

June 28th, 201010:19 am @ kristjana

0


Er að sjóða uppúr?

Ósætti og rifrildi eru óhjákvæmileg í öllum samböndum. En þú þarft ekki að rífast þangað til þú nærð ekki andanum til að ná þínu fram. Hér eru nokkur ráð fyrir þá sem komast ekki úr bardagahamnum.

Pása

Þegar þér finnst þú vera að springa og langar til að henda út harðri orðasvipu refsarans þá skaltu reyna að stoppa þig af og biðja um 10 mínútur til að koma reiðu á hugsanir þínar. Oft eru hlutir sem sagðir eru í reiði ósanngjarnir og ýktir. Þetta þýðir ekki að þú megir hendast út úr herberginu og skella á eftir þér hurðinni. Láttu maka þinn vita að þú viljir smá pásu á þessum umræðum og stígið bæði út í sitt hvert horn “hnefaleikahringsins”.
Alltaf þetta sama 
Sum pör rífast alltaf um sama hlutinn. Oftast um eitthvað sem annar hefur gert á hlut hins. Það er erfitt að fyrirgefa en það er heldur enginn tilgangur að rífast ef æskileg niðurstaða fæst ekki. Þið verðið að ákveða að reyna að ná niðurstöðu. Ef að þið getið ekki haldið sambandinu áfram án þess að þessi særandi atburður komi upp í síendurteknum rifrildum getur verið að þið þurfið tíma frá hvoru öðru.

Málefnaleg

Ekki vera ómálefnaleg og særandi. Að kalla einhvern nöfnum eða bera upp á hann einhver ósannindi eða bresti er ekki líklegt til að leysa nokkurn skapaðan hlut. Líklegra er að slíkt ofbeldi leiði af sér enn dýpri vandamál sem mun erfiðara er að leysa. Að kalla maka sinn, vin eða vinkonu nöfnum og niðurlægja, hvort sem það er gert bak við tjöldin (baktal) eða beint er andlegt ofbeldi og ber að taka mjög alvarlega.
Sumir rífast af því þeir elskast heitt eða þykir vænt um hvert annað. Ef að svo er,  þá ætti ástin eða vinskapurinn að duga sem áminning um að halda friðinn.

Hafið húmor

Stundum er hægt að brjóta upp hrikalega erfitt rifrildi með því að létta á andrúmsloftinu, fíflast og hlæja að fáránleikanum sem þið eruð búin að koma ykkur í. Húmor er guðsgjöf og séuð þið grínfær getið þið sigrast á erfiðleikum auðveldar en aðrir sama hvaða samskiptaflækjur er um að ræða.

Semdu

Ef að þið gefið hvorugt eftir er lítil von að sambandið verði langlíft, tja eða hamingjuríkt. Reynið að semja ef vandamálin eru ekki alvarleg. Ef að annað ykkar er í fýlu yfir því takast alltaf á við uppvask og þrif og hinum aðilanum finnst ósanngjarnt hvað hann er lengi að drattast á fætur á morgnana þá er um að gera að semja. Sá sem fer snemma á fætur á morgnana og reddar öllum morgunverkunum þarf ekki að vaska upp. Díll! 

Elskaðu friðinn 
Þeir sem eru friðelskir og rólegir búa yfir sálarró sem gefur þeim ágætis forskot í málum ástarinnar. Lærðu að elska friðinn og koma sjónarmiðum þínum á framfæri án þess að æsa þig. Athugaðu hvort þú átt í vandamálum með að ráða við eigin reiði, af hverju svo sem hún stafar, innan og utan veggja heimilisins.

Andsetin?

Sumir hafa masterað hrikalegan og ógnvænlegan eiginleika sem flestir óttast. Passífagressívu. Þið kannski kannist við týpuna sem yfirvegað beitir fyrir sig laumulegum eitruðum skotum sem hitta beint í mark eða segja eitthvað andstyggilegt með bros á vör. Þetta er djöfulleg hegðun og gerist þú sek um slíka, taktu þig á. Þú ert í slæmum málum ef makinn er búinn að tileinka sér svona hegðun, hvað áttu að gera? Fá til þín særingarprest? Passíft agressívt fólk þjáist af vanmetakennd þar sem samskipti við aðra einkennast af mikilli innibirgðri gremju. Með þá vitneskju í farteskinu geturðu ef til vill hjálpað og heilað. 

Haltu sjó! 
Stundum eiga rifrildi fullkomlega rétt á sér. Ef það er verið að vaða yfir þig á skítugum skónum með ósanngjarnir hegðun eða hlutverkaskiptum þá skaltu vissulega láta í þér heyra. Það er svo leiðinlegt að eyða lífinu í rifrildi. Ef maki þinn er óforbetranlegur og er slétt sama um að koma illa fram við þig. Kveddu hann!

Fyrirgefðu

Það er gott að segja fyrirgefðu og heyra það til baka. Segið það sem oftast, við minnstu tilefni. Þannig búið þið til sambandssögu og minningar sem byggja á gagnkvæmri virðingu.
Greinin er myndskreytt með myndum úr kvikmyndinni Prehistoric woman (1950).