Bardagalistakonur í kvikmyndum, þekkjum við þær? Hvers vegna þekkjum við bara nöfn Bruce Lee og Jackie Chan? Við kippum þessu í lag og kynnumst flottum konum sem brjóta múrsteina, veggi og …bein.
Konur berjast líka og hafa alltaf gert. Bardagalistin vinsæla Wing Chun er til dæmis kerfi sem búddísk nunna á heiðurinn af. Mörgum öldum síðar er sú bardagalist meðal þeirra sem kvikmyndaiðnaður hefur nýtt sér í brögð og brellur.
Drottning bardagalistanna er án efa Michelle Yeoh. Michelle hefur unnið með Jackie Chan frá upphafi ferils hans. Þau byrjuðu ferilinn saman í auglýsingum og síðar unnu þau saman í þáttunum Supercop. Michelle má sjá í myndunum Sunshine, Tomorrow Never Dies (Bond stúlka…) og í meistarastykkinu Memoirs of a Geisha. Áhorfendur féllu síðan algerlega í stafi yfir leik hennar, fegurð og brögðum í mynd Ang Lees; Crouching Tiger Hidden Dragon, þar sem hún leikur sér léttilega að Wuxia brögðum (forn kínversk bardagalist).
Einhverjum finnst líklega einkennilegt að sjá hina amerísku Gellar á þessum lista en hún á fyllilega skilið sæti á honum og lagði hart að sér að gefa persónunni Buffy í þáttunum Buffy the Vampireslayer magnaðan kraft. Í fyrstu þáttaröðinni er hún ekki sérlega álitleg en í þeirri þriðju er virkilega gaman að fylgjast með henni lumbra á blóðsugum með öryggi og af mikilli fimi. Sarah er með svart belti í Taekwondo og leggur einnig stund á hnefaleika, fimleika, skautadans, sparkbox og klifur.
Shang Kwan Ling Fong birtist í ótrúlegum fjölda mynda á sjötta og sjöunda áratugnum. Fong er með svart belti í Taekwando, karate og júdó. Hún lék eitt aðalhlutverkið í einni helstu bardagamynd þessa tíma: Dragon Inn. Sú mynd er hennar besta mynd og sú fyrsta (1967) Hún fer í fjölbreytt gervi í myndum sínum og mjög oft tók hún að sér hlutverk karla. Í engum af myndum sínum er hún í einhverju ástarstússi, hún er hreinlega of upptekin af því að lumbra á andstæðingum sínum.
Angela Mao, kölluð Lady Whirlwind og Lady Kung Fu af aðdáendum sínum. Hún var þrautþjálfuð í hapkido, kung fu og tae kwon do og mörgum öðrum bardagalistum. Hún nýtti krafta sína í kvikmyndaiðnaði. Það er reyndar til skammar hversu illa henni var borgað. Henni var til að mynda aðeins borgaðir 100 dollarar fyrir hlutverk sitt í Enter the Dragon.
Cynthia er mögnuð bardagavél. Hún er með svarta beltið í Tang Soo Do, Taekwondo, Wushu, Eagle Claw og Northern Shaolin. Stjarna hennar skein skært á níunda áratugnum og hún átti nokkra heimsmeistaratitla í karate. Hún á að baki langan feril í bæði kínverskum og vestrænum myndum en hún var aldrei álitin sérstaklega góð leikkona. Hún gerði mjög út á kynþokka sinn og sportaði ansi stórum silikontúttum ala næntís-sem virtust lítið þvælast fyrir henni í bardagasenum, var iðulega olíuborin og klæddi sig oft
ögrandi. Okkur finnst kynþokkafullt karate misskilningur sem Cynthia hefur vonandi undirstrikað og skjalfest um ókomna framtíð.
Zhang Ziyi er fædd árið 1979 og er líklega ein frægasta leikkona Kína um þessar myndir. Tvennum sögum fer af bardagahæfileikum hennar og þeir byggjast mjög á menntun hennar sem leikkonu.
Hún er talin ein af fjórum fremstu “Dan” leikkonum Kína. Dan er almennt heiti yfir kvenhlutverk í kínversku leikhúsi og óperu. Hvert þessarra hlutverka hefur misjafnar áherslur og mörg þeirra krefjast menntunar í bardagalistum. Zhang lærði einmitt í einum virtasta leiklistarskóla Kína þar sem mikið er lagt í að kenna þessa leikhefð. Algengustu “dan” hlutverk má telja Guimen Dan (dyggðum prýdd kona), Hua Dan (lífleg ung og skörp kona), Daoma Dan (ung stríðskona sem leikur listir með sverð), Wu Dan (stríðskona með mikla bardagareynslu og fjölhæf á vopn, þessi flokkur er reyndar mjög athyglisverður því leikkonurnar þurfa að geta barist á nokkurs konar háum hælum og er sú list kölluð Cai quiao.) Að auki þurfa leikkonur að ná hæfni í að túlka trúða og bregða sér í gervi gamalla kvenna. Það mætti jafnvel segja að þessi hlutverkaflokkun gamla kínverska leikhússins sé öllu fjölbreyttari en sú í Hollywood…
Við verðum að lokum að minnast á Lucy Lawless sem lék Xenu stríðsprinsessu. Hún var nú engin mulningsvél og var fyrst og fremst söng -og leikkona. Hún náði þó mikilli færni í hlutverki sínu og eftir langar og strangar æfingar mátti vel vara sig á henni Lucy!










June 3rd, 2010 → 12:33 pm @ kristjana
0