Lena Meyer-Landrut vann hug og hjörtu Þjóðverja og sigurlag hennar í Eurovision,Satellite, sat í fimm vikur í efsta sæti vinsældarlista þar í landi. Því var einnig halað niður mörg hundruð þúsund sinnum á farsíma sem er einhverskonar met í Þýskalandi. Myndbandið hennar á Youtube er einnig gríðarlega vinsælt en rúmar fimm milljónir hafa litið það augum og rúm þrjátíuþúsund skilið eftir skilaboð um gæði lagsins. Þrátt fyrir þessar vinsældir var Lenu ekki spáð sigri.
En nú hefur hún sigrað Evrópu og það á hárréttum tíma því Lena gaf út sína fyrstu plötu 7.maí síðastliðinn. Þjóðverjar voru þyrstir í sigur og höfðu gríðarmiklar væntingar til Lenu sem reyndi að róa landa sína. Lena sagðist í viðtölum ekki hafa fulla trú á sigri. Hún fyndi ekki fyrir góðum meðbyr eða því að hún væri í einhverju uppáhaldi. Þjóðverjar voru samt og eru enn með Lenu á heilanum-hún þykir sexý og smart, með einstaka söngrödd og skemmtilega framkomu. Þeir hafa velt fyrir sér öllum smáatriðum í hennar fari. Húðflúr hennar af sverðlilju á upphandleggnum, tákni hreinleika og sakleysis hefur glætt viðskipti húðflúrstofa í Þýskalandi miklu lífi og skartgripir framleiddir í klaustrinu Taizé í Frakklandi eru vinsælir. En þaðan er hálsfesti úr gulli með krossi og dúfu sem hún bar sér til gæfu í undankeppninni
Lena söng þrjú lög í undankeppninni í Þýskalandi sem áhorfendur völdu úr. Lögin vöru Bee, Love og Satellite. Hlustið og gerið samanburð.
Satellite
Love me
- Hér sést hálsmen Lenu og húðflúr
- Nýja ofurstirni Evrópu
- Smá rasskinnasýning hjá stúlkunni-erfitt að vera í stuttu pilsi!
- Lena fann ekki fyrir meðbyr fyrir keppnina
- Lena í skýjunum








May 29th, 2010 → 10:25 pm @ kristjana
0