1.Nefndu atburð/atburði sem breyttu lífi þínu?
Þórunn:
Þegar ég samþykkti að fara á blint stefnumót sem systir mín og vinkona hennar skipulögðu…Vildi sko ekki taka þátt í svoleiðis vitleysu fyrir það skipti, en lét til leiðast og sé ekki eftir því….Við erum gift í dag og eigum tvö börn! Mæli með þessu stelpur!
2. Ef þú þyrftir að velja um aðra atvinnu en þú hefur í dag hver yrði hún og afhverju?
Þórunn:
3.Hvað gerir þig reiða?
Þórunn:
Bankahrunið og spillingin sem hefur fengið að grassera hér á landi…og fólk sem ekki vill axla ábyrgð.
4.Hvað gerir þig hamingjusama?
Þórunn:
Bara þetta týpíska: fjölskyldan, vinirnir, góður matur og bjór…í hóflegu magni.
5.Hver væri yfirskrift ævisögu þinnar ef hún væri gefin út í dag og afhverju?
Þórunn:
Fyrstu 37 árin…..af augljósum ástæðum.
6. Ef þú værir dýr, hvernig dýr værirðu og afhverju?
Þórunn:
Köttur. Þeir eru svo sjálfstæðir.
7. Ef þú gætir breytt einhverju meðan þú lifir, hverju myndirðu vilja breyta?
Þórunn:
Það er nú ansi margt. Til dæmis hefði ég gjarnan viljað sjá hugarfarsbreytingu hjá prestum þjóðkirkjunnar varðandi hjónabönd samkynhneigðra. Ég skil ekki svona afturhaldssemi. Ég myndi líka gjarnan vilja sjá gagnrýnni fjölmiðla hér á landi. Frekari áherslur ríkis og borgar á menningu og listir. Gjarnan vildi ég að raforkuverð á íslandi yrði endurskoðað með viðskiptalegum forsendum að leiðarljósi, þannig yrði raforkuverð til garðyrkjubænda, til dæmis, lægra og raforkuverð til álfyrirækja hærra. Þannig myndum við hætta að styrkja stórfyrirtæki út í heimi með allt að því ókeypis orku og styðja við bakið á íslenskum fyrirtækjum. En auðvitað gæti ég skrifað langan lista af óskum um breytingar…en þá yrði þetta svar of langt…svo ég klára þetta svona og dembi mér í að sinna börnum og buru með bros á vör!
Ég skora svo á Sólveigu Arnarsdóttur leikkonu að svara þessum spurningum:
1. Hver er uppáhalds bókin þín og af hverju?
2. Hvað réttlætir listamannalaun?
3. Hvað ætlaðirðu að verða þegar þú varst lítil?
4. Hvert er draumaferðalagið þitt?
5. Hvaða leikrit myndirðu vilja sjá á fjölum Þjóðleikhússins á komandi tímum?
6. Hvað gerirðu helst til þess að slaka á?
7. Ef þú mættir breyta einhverju, hverju myndir þú breyta?



May 14th, 2010 → 10:19 am @ kolla
0