Sunnudagspönnukökur

May 2nd, 20102:45 pm @ kolla

1


Sunnudagspönnukökur

Þessar pönnukökur eru oftast kenndar við Ameríku en við kjósum að tengja þær við sunnudagssælu.

Hrærð egg,nýkreistur safi og ferskt ávaxtasalat á líka einstaklega vel með þeim. Í morgunmat, hádeginu eða á kvöldin, þú velur.

Pönnukökurnar

2 bollar hveiti
4 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt
2 egg
4 msk sykur
1 – 1 1/2 bolli mjólk
4 msk bráðið smjör

Aðferð:

Blandið öllum þurrefnunum saman í skál.

Léttþeytið eggin og sykurinn í annarri skál og blandið svo 1 bolla af mjólkinni og brædda smjörinu saman við.

Blandið blautu efnunum saman við þau þurru.  Þynnið deigið með mjólk þar til það er hæfilega þykkt.

Steikið pönnukökurnar við vægan hita á viðloðunarfrírri pönnu þar til kökurnar eru ljósbrúnar á hvorri hlið.

Berið fram með mjúku íslensku smjöri og hlynsýrópi.

Uppskriftin er fyrir 2-4.

Mynd og texti: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir