Kaldir litlir íspinnar með sumarbragði. Frábærlega hressandi á sólardegi og fullt af C-vítamíni og andoxunarefnum fyrir húðina.
3-4 bollar af frosnum berjum (hindberjum hér) maukað í matvinnsluvél
1 bolli af sætum safa, apríkósu eða Goji berry safi eru góðir
3 msk. Agave síróp
klakamót
Snittupinnar eða einhver góð prik
Maukinu er klesst ofan í klakaboxin og snittupinnunum stungið í. Látið í frysti í 15-30 mín. Það er svo frábært að nota svona frosin ber til að búa til sleikjóís, því þar sem berin voru frosin fyrir verður maukið ekki lengi að frjósa aftur. Tataaa… ís á engri stundu, einmitt þegar þörf var á!



Vala
1 Ár síðan
Hæ og takk fyrir rosa skemmtilega síðu sem ég skoða oft. Flottir ísar! Hvernig pinnar eru þetta sem þú notar og hvar færðu þá? Ég geri oft holla íspinna í IKEA klakaboxi (með tilheyrandi pinna) en mér finnst þetta voða smart og hef einmitt verið að leita að mjórri pinna (t.d. til að stinga í banana sem settur er í frysti, svo má dýfa honum í bráðið súkkulaði þegar hann er tekinn frosinn út og úr verður hinn flottasti ís með dýfu)
Ragnheiður
1 Ár síðan
Dísus hvað þessi banana ís virkar sjarmerandi!
Hugrún
1 Ár síðan
Rosalega er þetta barn kunnulegt
Góð hugmynd, er farin heim að prófa, á svona IKEA-íspinnaboxsett sem er mikið notað til að frista ávaxtasafa úr dýrumflöskum sem liggur undir skemmdum… Dóttir mín er duglegri við að borða þannig ís en að drekka safan! Svo er þetta snildar ráð í átakinu mínu um að hætta henda mat.