Ryðguðu hjóli bjargað með sítrónu

May 4th, 201010:56 am @ arna

1


Ryðguðu hjóli bjargað með sítrónu

Við viljum síður þeysast um á ryðgaðri druslu svona þegar við erum komnar í vorkjólinn. Ef hjólið hefur staðið úti  í allan vetur er það líklegast farið að láta á sjá. Ágætt er að byrja á að skola og þurrka af hjólinu og takast svo á við ryðblettina. Við erum svo með fleiri trix fyrir ykkur að prófa eftir að þetta er komið í lag.

Ryðgaða hjólinu bjargað:

1. Skolið skít og sót af hjólinu og þerrið það vel. Metið skaðann og sjáið hvaða fleti þarf að pússa.


2. Allt sem þarf til verksins er sítrónusafi og svampur með grófri hlið, jú tusku til að þerra sítrónusafann er betra að hafa við hendina.


3. Bleytið í svampinum með sítrónunni og pússið ryðblettina í burtu.

4. Eins og nýtt! Til að verja yfirborðið bárum við ódýra matarolíu yfir stellið þar sem það hafði verið pússað.

Látið okkur endilega vita hér í skilaboðaskjóðunni fyrir neðan hvernig ykkur gekk eða hvort þið lumið á öðrum góðum ráðum fyrir hjólið.