Orkukubbar með berjaslúbbi

May 19th, 20109:58 am @ arna

9


Orkukubbar með berjaslúbbi

Orkukubbar með berjaslúbbi er heimatilbúið milli-mála-snarl og algjörlega tilvalið fyrir krakka (og fullorðna) á ferð og flugi.

Börn, næring og skipulag.

  • Þau eru þreytt og orkulaus eftir skóla og leikskóla seinnipartinn. Hausinn á þeim rykkist fram og aftur og til hliðar og þau ranghvolfa augunum og væla út af einhverju sem þau eru samt búin að gleyma hvað var.
  • Maður gleymir iðulega að hafa tiltækt eitthvað að narta í. Verst er að vera á leið á æfingar/tómstundir og uppgötva að það þarf að koma við í búð eða bakaríi því börnin eru óð af orkuleysi. Nóg er brauðátið fyrir.
  • Sum börn virðast þurfa meiri orku en önnur (eplabitar fyrir orkumikil börn – ekki nóg!). Og þau eru misviðkvæm fyrir blóðsykursveiflum. Þær sem eiga börn með athyglisbrest/ofvirkni vita um hvað ræðir.
  • Þekking á vandamálinu, að átta sig á hversu mikilvæg góð næring og jafn blóðsykur er fyrir heilsu og geðheilsu (allra)  og undirbúningur eru nauðsynleg atriði í að eiga friðsæla fjölskyldudaga.

Að eiga niðurskorið grænmeti í litlum zip-lock pokum í ísskápnum til að grípa með, rúsínur og möndlur (hollt og gott fyrir litla heila) eða eplabáta er frábært.

Í heilsuhillunni í Melabúðinni eru til einhverskonar speltkökur sem eru fylltar með berjasultu, enginn viðbættur sykur og fínerí. Þær eru pakkaðar hver fyrir sig í bréf. Þetta eru stórsniðugar kökur og bjarga miklu þegar einhver er “miklu svengri” en rúsínur og möndlur geta bjargað.

Þessi uppskrift er spuni og tilraun til að herma eftir þessum kökum. Þær eru æðislega góðar!

  • 400g haframjöl
  • 250g smjör
  • 100g heilhveiti
  • 1 tsk. lyftiduft
  • kanill á hnífsoddi
  • hjartarsalt á hnífsoddi
  • Smávegis Agave síróp
  • mjólk til að bleyta upp í deiginu

- Þessu er hnoðað saman og klesst niður á bökunarpappír á plötu.

Helmingurinn af deiginu er smurður með sykurlausri sultu (Dalfour) og ofan á bætt við maukuðum frosnum hindberjum. Hinn helmingurinn lagður yfir.

Bakað við 200° C í 10-15 mín.

Kökurnar eru skornar í bita þegar nýkomnar úr ofninum.

Það er ekki verra að klippa niður bökunarpappír og pakka inn hverjum kubbi fyrir sig. Þetta er nefnilega besta orkunestið þegar ekki er tími til að smyrja og þá er hægt að grípa með Orkukubb með berjaslúbbi. ***