Nú eru góð ráð ekki dýr

May 2nd, 20101:54 pm @ kolla

0


Nú eru góð ráð ekki dýr

Ynjur elska að fá  innblástur úr bókum og tímaritum og ekki verra að þau gefi nýtileg ráð í leiðinni.

Bækurnar “60’s og 70’s fashion-vintage fashion and beauty ads”  innihalda skemmtilegar auglýsingar frá því tímabili.
Svona á að gera auglýsingar segjum við. Það er alveg hægt að gleyma sér í litadýrðinni og fegurðinni, svo ekki sé minnst á textana sem gera vöruna ennþá söluvænlegri ,allt svo mikið augnakonfekt.
Slagorð Jesus jeans eins og nafnið sé ekki nóg segir allt sem segja þarf “thou shalt not have any other jeans but me”. Hafa örrugglega mokselst í suðurríkjunum og víðar.
Við rákumst svo á eitt ofsa fínt ráð í 70’s bókinni. Þetta var sítrónuauglýsing sem er hér lauslega þýdd:
“Þegar amma þín var ung voru þurrir og grófir olnbogar miður falleg sjón á fallegri stúlku. Það eru þeir enn. En það sem amma vissi ekki er að sama fegrunarráðið sem hún notaði til að fá hár sitt til að glansa, virkar líka á olnbogana. Það er hressilega ilmandi sítrónan sjálf. Frískandi, árangursrík og full af góðum efnum sem koma frá jörðinni, ekki tilraunastofu. Prófið ferska sítrónuskrúbbið okkar og þið vitið um hvað við erum að tala. Skerið bara ferska Sunkist sítrónu í tvennt og stingið sitthvorum olnboganum ofan í helmingana í nokkrar mínútur á meðan þú lest eða horfir á sjónvarpið. Náttúrulegur safinn mun hjálpa til við að mýkja þurra og grófa húðina..gerir það auðveldara að skrúbba hana burt. Olnbogarnir verða silkimjúkir.
Hið eina sanna sítrónuskrúbb í næstu matvöruverslun”.

Við máttum til með að prófa og olnbogarnir hafa sjaldan verið mýkri svei mér þá.