Netið er endalaus uppspretta innblásturs. Við erum hins vegar vanaföst og festumst í að skoða sömu innihaldslausu síðurnar. Við fáum skemmtilegar ábendingar frá Söru Stefánsdóttur upplýsingafræðingi hjá Háskóla Reykjavíkur um ýmis konar netdjásn sem er þess virði að halda upp á.
“Þetta eru þeir tenglar sem ég skoða daglega. Suma þeirra er ég með opna allan daginn eins t.d. gogo, twitter og FB (sem ég lista ekki hér);”
Hér fylgi ég allskonar fólki og fyrirbærum. Sérsniðið að mínum þörfum, persónulegum og vinnu. Endalaus uppspretta.
Tónlist á gogo:
gogoyoko.is
Hér hef ég líka tekið mér bólfestu og hringla með playlistann. Hlusta oft á dag á minn eigin og tek stikkprufur á öðrum.
Nýjasta nýtt:
mashable.com/
Hingað fer ég oft til að sækja mér upplýsingar um það nýjasta.
Tölfræði getur verið list:
informationisbeautiful.net/
Orð að sönnu í heiti þessara síðu. Tölfræði umbreytt í listaverk. Hér er það höfundur sjálfur sem vinnur verkin. Þau tala nú samt fyrir sig sjálf.
Ýmis netdjásn:
infosthetics.com/
Ég er áskrifandi að þessu bloggi. Djásn eftir djásn sem vísað er í þarna.
Vinsælt í ameríku:
tumblr.com/
Hér er ég nýkomin inn. Bendi hér á t.d. organized-ignorance.net og egillhardar.tumblr.com en ég sá þetta fyrst hjá Agli og hef svo bara skoðað það sem hann fylgir svona til að byrja með. Er bara að feta mín fyrstu skref þarna. Gott að geyma þarna allskonar sem ég veit ekki hvert ég setti annars auk þess sem ég get póstað þarna beint á Facebook og twitter: sarastef.tumblr.com.
- Hvaða litur táknar hamingju í Kína eða heppni í Austur Evrópu? Þessi mynd er tölfræðilistaverk af Informationisbeautiful.net
- Sara Stefánsdóttir upplýsingafræðingur í Háskólanum í Reykjavík
- Gull úr kistu infohostics- búðu til graf yfir hegðun þína
- Á mashable eru skemmtilegar greinar um nýjungar í félagsmiðlum
- Á gogoyoko ættu allir Íslendingar að vera! Ein besta vefsíða landsins.
- Á Tumblr setja flestir inn áhugavert myndefni, lög eða hnyttinn texta. (Af síðu Jón Grétars)
- Á twitter finnur þú ekki bara fræga einstaklinga vini og félaga heldur er það líka vettvangur nýsköpunar og hugmynda
- Tumblr er helst þekkt fyrir hversu margar leiðir eru færar að setja ýmiskonar efni á netið.
- Netdjásn af infosthetics.com – abstrakt verk gert úr hreyfingum tölvumúsar.












May 22nd, 2010 → 11:30 am @ kristjana
0