Á flestum heimilum er í það minnsta ein óskilgreind skúffa sem sogar að sér allt “draslið” sem þú veist ekki hvar á að geyma.
Bréfaklemmur,gúmmíteygjur, eldspýtur, kennaratyggjó, teiknibólur, kasetta með Red hot chilli peppers og kannski korktappar.
Móðir mín hefur geymt kampavínskorktappa ásamt nokkrum venjulegum í skúffu í eldhúsinu í mörg ár.
Ég man eftir að hafa rekist á þá í gegnum tíðina þegar ég var að leita að einhverju sem er geymt í “svoleiðis” skúffu.
Engum datt nokkru sinni til hugar að henda þeim en enginn notaði þá heldur.
Það var ekki fyrr en nýverið að ég skyldi raunverulegan tilgang þeirra.
Fínasta endurvinnsla og krakkarnir verða himinlifandi með nýtt hlutverk tappana.
Ekkert er tilgangslaust.
Myndir og texti: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir








Harpa Rut
2 Árs síðan
Þetta er náttúrulega alger snilldarhugmynd. Hver þarf dót þegar til eru korktappar og málning.