Hunangsskrúbb

May 6th, 20104:00 pm @ kolla

0


Hunangsskrúbb

Þessi einfalda blanda gerir galdur fyrir húðina.

Hún hreinsar burtu dauðar húðfrumur ,nærir, mýkir og eftir stendur þú endurnærð með hunangsmjúka húð.

Þú þarft:

1 msk. af salti grófu eða fínu (fínu ef húðin er viðkvæm)

2 msk. af ólífuolíu

1 msk. af hunangi (helst seigfljótandi og ekki of þunnt)

1-2 dropar af ilmolíu (má sleppa)  fenníku eða piparmyntuolía virka til dæmis örvandi til hreinsunar og bæta meltinguna

Aðferð:

Öllu blandað saman í litla plastskál.

Nú lætur þú renna í þægilega  heitt bað og liggur þar í 10 mínútur til að leyfa húðinni að mýkjast.

Svo berðu blönduna á útlimi með þéttum , mjúkum hreyfingum. Gefðu sérstakan gaum að fótum, hnjám og olnbogum því þar er helst að finna harða húð. Síðan læturu blönduna skolast burt í baðvatninu og þar með dauðar húðflögur. Loks þurrkarðu þér vandlega og berð venjulegt rakakrem á allan líkamann. Það gæti reyndar verið óþarfi þar sem húðin verður svo glansandi fín eftir skrúbbið.

Mynd og texti: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir