Hjólagreiðslur

May 20th, 20102:08 pm @ kolla

4


Hjólagreiðslur

Þegar við erum mikið á ferðinni útivið það fullmikil fyrirhöfn að blása hárið á hverjum degi, slétta það eða krulla. Regn og vindur vinna sífellt á móti þér og þess vegna er liðað hár, fléttur og fallegir hnútar frábær lausn fyrir konur sem hafa mikinn tíma fyrir ævintýri en lítinn fyrir dútl og vesen.

Það er nefnilega auðveldara en margir halda að setja hárið upp í fallega greiðslu sem heldur vatni, veðrum og vindum. Lykilatriði er að hárið sé ekki of mikið til haft heldur mjúkt og náttúrulegt. Við fengum stelpurnar á Aveda stofunni 101 Hárhönnun til að sýna okkur réttu handtökin.

Það getur verið gott að setja örlítið af hármótunarefni í hárið

Stelpurnar á Aveda nota þetta hársprey, hárið verður ekki stíft

Liðað hár:

“Það er einfalt að liða hár án þess að nota sléttu -eða krullujárn,” segir Sandra Olgeirsdóttir einn eigenda hárgreiðslustofunnar sem er með hendur í hári einnar okkar. “Þegar ég kem úr sturtu á morgnana þá sný ég blautu hárinu um fingurinn upp í litla snúða og bind svo trefil eða hálsklút utan um hárið. Svo þegar ég hef hjólað í vinnuna og losa klútinn þá hefur það þornað í fallega, náttúrulega liði. Sumum finnst betra að spenna hárið upp í litla snúða eða taka það blautt upp í teygju til að fá þéttari liði. Ég spreyja stundum létt yfir hárið með hárspreyi eftir að ég losa um liðina til að þeir haldi aðeins en það er mikið atriði að nota sem minnst af efnum. Það getur líka verið gott að setja eitthvað í hárið áður en það er sett upp í liðina, eins og til dæmis Be Curly hármótunarkrem, létta froðu eða létt hármótunarsprey.
Síðan má leika sér mikið að því að setja liðað hár upp með nokkrum spennum í hnúta og afar einfaldar greiðslur sem verða samt svo skemmtilega rómantískar þegar hárið er liðað.”

Nokkrir hárpinnar geta gagnast vel til að breyta til yfir daginn.

Hér hefur fléttan verið fest upp með nokkrum spennum og útkoman er glæsileg.

Fléttur:

“Útkoman er eiginlega best þegar þú gerir fléttuna sjálf með fingrunum og helst blindandi því þá er hún ekki of stíf og tilhöfð,” segir Elsa Birgisdóttir hárgreiðslukona. “Það er best að prófa sig áfram hvernig fléttur fara andlitslaginu best. Sumum fer afar vel að flétta hárið í lausa síða fléttu meðan öðrum fer vel að flétta hár í kringum andlit. Það má flétta stutt og millisítt hár með góðum árangri.
Fléttur eru fyrst og fremst þægilegar og góð tilbreyting. Konur sem hjóla mikið finnst oft þægilegt að vera með hárið fléttað því það er bæði fallegt og truflar þær lítið. Hárið er þá ekki í óreiðu þegar hjólahjálmurinn er tekinn af. Þá er kosturinn líka sá að það fer vel með hárið að nota engar afurðir í það.”

Texti: Kristjana Guðbrandsdóttir

Myndir: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir