Hafrabollur með eplum og trönuberjum

May 13th, 20104:32 pm @ kolla

2


Hafrabollur með eplum og trönuberjum

Bollurnar smakkast dásamlega nýbakaðar með smjöri og svo er tilvalið að frysta rest (ef einhver er) til að eiga í  vinnu eða skólanesti,  nú eða lautarferð á góðum degi.

Í þessari uppskrift byrjum við á því að laga dýrindis hafragraut sem síðan er settur saman við deigið.

Uppskriftin gefur u.þ.b. 16 bollur

Hafragrautur:

1 epli

2 dl vatn

2 dl mjólk

60 gr. haframjöl

Deig:

2 dl AB mjólk eða hrein jógúrt

50 gr. ger (12 gr. þurrger)

1 tsk. hunang

2 tsk. gróft salt

75 gr. sólþurrkuð trönuber

100 gr. rúgmjöl

500 gr. hveiti

Aðferð:

1. Skrælið eplið og skerið í smáa bita.

2. Setjið epliabitana, vatn, mjólk og haframjöl í pott og sjóðið í 2 mínútur.Takið pottinn af hellunni og leyfið grautnum að kólna þar til hann er ylvolgur.

3. Hellið AB mjólkinni í skál og leysið gerið upp í henni. Bætið við hunangi, salti, trönuberjum og hafragrauti og hrærið vel.Setjið rúgmjöl og bætið  hveiti við smátt og smátt.

Hrærið vel í deiginu. Það þarf kröftugt handafl eða hrærivél í verkið. Deigið á að vera blautt og svolítið klístrað.

4. Breiðið yfir deigið og leyfið því að hefast á hlýjum stað í klukkutíma.

5. Dýfið matskeið í kalt vatn og mótið deigið í frjálslegar  bollur sem lagðar eru á  bökunarplötu, klædda bökunarpappír .

Leyfið bollunum að hefast í 30 mínútur.

6. Stillið ofninn á 200 gráður.

Bakið bollurnar í 15 – 20 mínútur og leyfið þeim að kólna aðeins á bökunargrind.

Njótið vel*

Myndir og texti: Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir