Guðrún og Guðrún

May 27th, 201011:43 pm @ kristjana

0


Guðrún og Guðrún

Gudrun & Gudrun tískuhúsið er í eigu tveggja færeyskra kvenna. Þær nýta sér náttúrufegurð Færeyja í sköpun sinni á ullarfötum sem hafa með tíð og tíma orðið að hátískuvöru. Það er auðsjáanlegt af hönnun þeirra að mikil ástríða liggur að baki og þær eru snjallar markaðsmanneskjur líka. Vinsælasta flíkin þeirra hefur undanfarin misseri verið ullarpeysa sem Sofie Gråbøl leikkona klæðist í hlutverki sínu sem rannsóknarlögreglukonan Sarah Lund.

Þær líkja aðferðum sínum við matargerð. Sumar flíkur eru skyndibiti meðan aðrar eru ógleymanleg máltíð þar sem hvert einasta hráefni og stílbragð er úthugsað smáatriði og hluti af heild.  Þær eru snillingar og við dáumst að því hvernig þær nýta færeyskan þjóðararf á nútímalegan hátt og án allrar græðgi. Það er ekkert fljótfærnislegt við flíkurnar, hugmyndafræðina eða markaðssetninguna.

Nafn prjónakonunnar sem prjónar hverja flík er áfast henni. Ef þú vilt panta þér peysu- verður þú að bíða meðan hún er prjónuð af einni af fjölmörgum prjónakonum Færeyja sem starfa hjá GogG.

Fallegur kvennaiðnaður ekki satt? Við lítum á nokkrar myndir af hönnun þeirra og fáum innblástur. Flíkur þeirra eru töluvert dýrar og því er ekki á allra færi að eignast slíka. En þið getuð fræðst frekar um þær á heimasíðu þeirra.