Gleði og hlátur í núinu

May 15th, 20105:10 pm @ kristjana

0


Gleði og hlátur í núinu

“Við erum að skapa allan daginn; við erum skapandi í samskiptum, þegar við erum að búa til matinn, klæða börnin okkar og gera kósý heima, listinn er í raun endalaus. Við viljum virkja sköpunarkraftinn og tendra neistann sem býr innra með okkur öllum,” segir Þórey Viðarsdóttir ein þriggja kvenna sem standa á bakvið fyrirtækið ÍANDA sem skipuleggur vellíðunarferðir fyrir konur á Íslandi.

Jógadans losar um hömlur, hreinsar og heilar

“Tímarnir eru að breytast og lífsgildin með. Við leitum í auknum mæli leiða til þess að kanna og tengjast okkar innri manni. Þjónusta ÍANDA  er því skemmtileg ný nálgun og leið til þess að efla mannsandann og hafa gaman um leið. Nútímakonan er drekkhlaðin ábyrgð og skyldum og þarf því að komast frá í endurnærandi umhverfi til þess að hlúa að sjálfri sér og koma tvíefld til baka. Okkar takmark er að færa konum ákveðna aðferð, Spíralflæði ÍANDA, sem þær geta innleitt inn í líf sitt og virkað sem stuðningur í áframhaldandi sjálfsrækt þegar heim er komið.”

Vinkonurnar þrjár sem standa að baki ÍANDA eru systurnar Þórey Viðarsdóttir sem er leiðbeinandi í jógadansi og Helga Sóley framkvæmdastjóri og Sólveig Katrín Jónsdóttir listmeðferðarfræðingur og meðferðaraðili í heildrænum nálgunum. “Markmiðið er að bjóða konum upp á einstakt tækifæri til að upplifa vellíðan og jafnvægi á líkama, huga og sál. Okkar áhersla er gleði og hlátur í núinu. Við viljum búa til töfrandi og umvefjandi umhverfi þar sem við getum leyft okkur að vera í um stund og gefið okkur lausan tauminn og notið þess að vera til. Vera í kyrrð, tengjast okkar innsta kjarna og muna hverjar við erum, yndislegar konur og gyðjur.

Jógadans, sköpunarkraftur og hugleiðsla

En út á hvað gengur jógadans? “Jógadans er einstök blanda af jóga og flæðidansi,” útskýrir Þórey. “Í gegnum dansinn könnum við og upplifum orkustöðvar líkamans sem hver og ein hefur sinn eiginleika og kraft. Þegar við dönsum í gegnum orkustöðvarnar sjö hleypum við frjálsu flæði orkunnar af stað og losum um hömlur sem geta búið innra með okkur, hreinsum og heilum, slökum á spennu og finnum okkur aftur í frelsi og gleði. Við finnum aukið sjálfstraust og farveg fyrir skapandi tjáningu. Erum dansinn en ekki dansarinn.”

Undir handleiðslu Sólveigar listmeðferðarfræðings

“Undir handleiðslu Sólveigar náum við svo flæði í sköpun þar sem við notum myndræna tjáningu til að virkja sjálfsprottinn sköpunarkraft og þá er nauðsynlegt að sleppa tökunum og leyfa sköpunarferlinu að taka yfir. Þagga niður í gagnrýnisröddum og hlusta á eigið innsæi. Í þessu ferli er engin þörf á kunnáttu eða reynslu.”

Heimsækið heimasíðu ÍANDA fyrir frekari upplýsingar og skráið ykkur á póstlista á info@ianda.is til að fá tilkynningu um næstu ferðir.