Glæsilega Grace Kelly

May 17th, 20104:20 pm @ arna

0


Glæsilega Grace Kelly

Fegurð og hógvær stíll.

Grace Kelly var kona með einstaklega fallegan smekk. Hún þótti alltaf virðuleg og glæsileg í hverju því sem hún klæddist.
Leyndarmál hennar var að klæðast einföldum sniðum og forðast föt sem voru of skreytt.
Þess í stað lék hún sér með aukahluti og bjó til skemmtilegar samsetningar þar sem grunnurinn var samt sem áður einfaldleiki og stíll. Þá notaði hún gjarna stór sólgleraugu, fallega klúta og djarfa hatta.

Listin að velja einfaldan, klassískan fatnað

Viljir þú ná fram stíl eins og Grace Kelly þarftu að hugsa um að fötin séu einföld, einlit og glæsileg. Veldu hlutlausan lit sem fer vel með þínum húðlit og byggðu upp fataskápinn með vönduðum flíkum. Seinna geturðu svo bætt við spennandi skartgripum eða aukahlutum sem lífga upp á útlitið.

Einfaldir en glæsilegir skartgripir

Grace Kelly sást oft með perlufesti um hálsinn, skart sem er og verður ávallt glæsilegt og klassískt. Gull eða silfurskartgripir eru ekki síður fallegir og þú getur alveg notast við slíkt skart og verið jafn glæsileg.

Náttúruleg og eðlileg

Á mörgum þeim myndum sem til eru af Grace Kelly sést hún með hárið bundið í einfaldan hnút. Þegar hún var ekki með hárið uppsett frá andlitinu var það lauslega greitt og klippingin einföld og þægileg. Það sama gilti um förðunina. Þú finnur ekki mynd af Grace Kelly þar sem hún er of mikið máluð. Augabrúnirnar eru ekki of plokkaðar. Það krefst þjálfunar að verða snillingur í að mála sig þannig að það sjáist ekki, en þannig erum við fallegastar.

Einfaldur glæsileiki

Einfaldur glæsileiki fyrir henni fólst í að sniðganga of efnismiklar flíkur, of þröngar og of skreyttar. Sléttbotna leðurskór, golla og capri buxur, hvítar skyrtur  og pils sem undirstrikuðu mittislínuna voru hinsvegar hennar einkenni.
Við skoðuðum okkur aðeins um og könnuðum hvar við gætum fengið föt í stíl Grace Kelly. Kíkið á myndirnar.