Búðir á Snæfellsnesi

May 25th, 201011:25 am @ arna

1


Búðir á Snæfellsnesi

Það er algjört leyndó, en einn fallegasti staður í heimi er á Snæfellsnesi.

Snæfellsnesið allt er undurfagurt og spennandi, það er gaman að keyra nesið og færast nær jöklinum í allri sinni dýrð. Ströndin er svo falleg á Snæfellsnesi að maður trúir því auðveldlega að hér sé fallegasti staður á jörðu. Þegar veðrið er gott er yndislegt að lulla um, kasta sér í mosavaxna laut í hrauni og sóla sig. Finna leyniströnd með hvítum sandi og biksvörtu grjóti bak við grænt sefgras. Tína skeljar. Skrifa í sand.

Búðir standa við ströndina og það er stórkostleg upplifun að gista þar, vakna við jökulinn, borða ristaðbrauð með marmelaði og drekka kaffi yfir útsaumuðum íslenskum dúk. Sitja í arinstofu og lesa National Geographic frá 1970. Fá sér drykk og ganga út á ströndina. Fegurð í sálina, það er það sem er. Hún endist lengi.

Frá Búðum er stutt keyrsla á Hellnar þar sem er að finna besta veitingastað í heimi, Fjöruhúsið. Fiskisúpa og hvítvín sem er snætt niðri í fjörunni og fylgst með fuglum, selum og háhyrningum (já, alveg satt!) – gæti það verið betra? Eftir matinn að ganga upp á björgin og horfa niður í fuglasamfélagið, heilsa upp á feimið lamb og rollumömmu. Tína fyrstu sóleyjarnar til að pressa.

Vegasjoppur sem eru alvöru eru færri en áður. En þeim mun meiri gleði að vita af þeim sem eftir lifa. Vegamót á Snæfellsnesi er alvöru vegasjoppa. Góður hamborgari (eða kjötsúpa) bragðast vel með útsýninu og að hlusta á spjall heimamanna um hænuunga sem eru að klekjast úr eggjum “þeir eru æðislega fallegir á litinn” (ætli það séu landnámshænur?). Ís í eftirrétt, alvöru ís í brauði og enga sósu eða dýfu vitleysu – það er ekki einu sinni í boði.

Yndislega Snæfellsnes – sjáumst síðar.