Eftir hvirfilbylinn sem rauk hér yfir síðustu ár standa flestir og klóra sér í höfðinu yfir því hvernig hlutirnir eiga eiginlega að vera. Hreinskiptin viðskipti og viðskiptahættir hafa verið í þoku og launamenn talið sig heppna að starfa hjá glæsimennum með sjálfsöryggið í botni. En út á hvað gengur þetta allt? Hverju skal fylgja þegar allt er að renna á rassgatið?
Ógn um uppsögn eða viðvarandi atvinnuleysi og óvissa um framtíðina eru ofarlega í huga. Það virðist kannski sem ekki sé mikið hægt að gera, að örlög þín séu í höndum annarra. En staðan er ekki svo slæm. Algerlega óháð kreppu er til leið sem tryggir þér peninga í vasann á heiðarlegan máta. Hvenær sem er og alltaf.
Búðu til verðmæti!
Mikilvægt atriði hefur gleymst í öllu viðskiptahjalinu síðustu ár. Almennt hefur vitneskjan um hvernig peningar verða til smurst svolítið út. Það er ónotalegt að verða vitni að því að stöndugustu fyrirtæki og viðskiptamenn síðustu ára fengu peninga án þess að gefa nein verðmæti á móti. Að fá peninga fyrir ekki neitt á ekki að vera hægt. Það er svikamylla.
Peningar eru bara miðill til að skipta á verðmætum. Peningar er það sem þú færð í staðinn fyrir þau verðmæti sem þú skapar og kemur til skila. Ef þú aftur á móti reynir að fá peninga inn án þess að skila frá þér verðmætum, þá ert þú að reyna að fá eitthvað fyrir ekki neitt. Þessi aðferð virkar ekki vel og er tímasóun. Fólk áttar sig á því á endanum að það hefur verið svikið ef þú ætlar að fara þessa styttri leið og þú ert jafn illa eða verr stödd en áður.
Verðmæti geta verið svo margt. Góður pistill, góð hönnun, gott handverk, forritun, bókhald.
Ef þú ert í fjárhagskröggum skaltu einbeita þér að því að skapa og skila af þér verðmætum. Vinna þín, hvort sem það er það sem þú starfar núna eða ósnert auðlind sem þú ætlar að nýta, er verðmæti. Ef þú getur aukið á verðmætasköpun þína og nærð að koma henni til skila, þá ertu líka að auka á innstreymi peninga. Ekki falla í þá gryfju að eltast við léleg tækifæri til að skrapa saman nokkrum aurum. Haltu einbeitingu og það kemur fljótlega að því að verðmætin sem þú hefur skapað fara að skila til þín peningum.





Guðmundur Ásgeirsson
1 Ár síðan
Vissulega eru peningar ekki verðmæti í sjálfu sér, en hvaðan koma þeir þá, hver býr þá til og hvernig er þeim ráðstafað inn í fjármálakerfið? Því miður þá svarar þessi ágæta grein ekki þessum brýnu spurningum.
kristjana
1 Ár síðan
Henni er alls ekki ætlað að svara þeim. Heldur er þetta hugleiðing um alvöru verðmæti og svo fölsuð.