Leita eftir mánuði »May, 2010«
→ May 26, 2010
Aukaplássið í garðinum getur gefið þér mikla ánægju. Útiveru, jarðtengingu og hálfgerða hugleiðslu við að róta í moldinni, vökva og að lokum að njóta lífræns heimaræktaðs grænmetis.
Ef þú átt aukapláss í garðinum væri ekki vitlaust að stinga þar upp og setja góða mold, búa til matjurtagarð og njóta lífsins næringar og lystisemda.
Kryddgarðurinn
Matjurtagarðar geta verið ýmiskonar. [...]
→ May 26, 2010
Kaldir litlir íspinnar með sumarbragði. Frábærlega hressandi á sólardegi og fullt af C-vítamíni og andoxunarefnum fyrir húðina.
3-4 bollar af frosnum berjum (hindberjum hér) maukað í matvinnsluvél
1 bolli af sætum safa, apríkósu eða Goji berry safi eru góðir
3 msk. Agave síróp
klakamót
Snittupinnar eða einhver góð prik
Maukinu er klesst ofan í klakaboxin og snittupinnunum stungið í. Látið í [...]
→ May 25, 2010
Það er algjört leyndó, en einn fallegasti staður í heimi er á Snæfellsnesi.
Snæfellsnesið allt er undurfagurt og spennandi, það er gaman að keyra nesið og færast nær jöklinum í allri sinni dýrð. Ströndin er svo falleg á Snæfellsnesi að maður trúir því auðveldlega að hér sé fallegasti staður á jörðu. Þegar veðrið er gott er [...]
→ May 25, 2010
Karen Blixen fékk aldrei nóbelsverðlaun en átti þau fyllilega skilið að mati menningarmafíunnar. Hún er ynja vikunnar.