Gamaldags og nútímalegt. Amerískt og Evrópskt. Móðir og dóttir. Flauel og silki.
Nina og Kaya Egli gefa okkur fallegar hugmyndir fyrir verslunarrölt helgarinnar. Þær sem ætla að skreppa í verslunarferð til New York eða Berlín verða að kíkja á fötin í alvöru. Við hinar notum þær til innblásturs.
Nina og Kaya Egli eru konurnar á bak við fyrirtækið Family Affairs. Þær mæðgur sameina krafta sína í að hanna guðdómlegan fatnað fyrir konur og hafa báðar bakgrunn í tísku og hönnun.
Kaya Egli opnaði sína fyrstu búð 20 ára gömul. Þar seldi hún eigin hönnun og gömul föt. Ferill hennar þróaðist þaðan til þess að verða hönnuður í Apple Bítlabúðinni í London.
Nina Egli byrjaði á því að hanna skartgripi og fór upp úr því að hanna fatnað. Nina býr í New York og Kaya í Sviss og hönnunin verður til á ferðalagi milli þeirra tveggja. Nina heimsækir flóamarkaði, sýningar og sækir sér innblástur hvaðanæva að úr ólgandi menningarlífi Manhattan. Úr sögusafni og ferli Kayu sækja þær svo snið og hönnun sem þær aðlaga að þeim kjarna sem leitað er að hverju sinni.
Ætli það sé ekki málið að vinna þvert á kynslóðir saman að því að finna fallegar nýjar lausnir? Það virðist virka hjá Egli mæðgunum. Og, já. Var ekki einhver að tala um að flauel og mynstur væru komin í tísku. Mýkt og kvenleiki. Ég held það nú!
Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir úr vor -og sumarlínu þeirra mæðgna og nokkrar úr vetrarlínunni 2009 líka. Verslanir þeirra má finna í New York, Sviss og Berlín.
- Einföld svört peysa
- Kvenleg en töff skyrta fyrir sumarið
- Kynþokkafullur samfestingur í grænum tónum
- Elskum þessa samsetningu. Bolur með hálfermum og stuttbuxur. Beltið er nauðsyn.
- Tipl í grasi og síður kjóll
- Falleg en einföld skyrta í ljósgulum lit
- Við ætlum fljótlega að kenna ykkur lesendum að gera svona fallega poka sjálfar!
- Flauel og blúnda úr vetrarlínunni
- Kisulóruleg múndering sem okkur finnst meiriháttar!
- Mæðgurnar Kaya og Nina
- Nina í stúdíó sínu í Brooklyn- mynd Andrew Liechtenstein
- Nina vinnur í teikningu














April 24th, 2010 → 2:43 pm @ kristjana
0